UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Fyrstu athuganir benda til að allt vatnskerfi í suðurhluta Líbanon sé mikið skemmt eftir mánaðarlöng átök þar. Af tólf stöðum, sem urðu fyrir árásum, voru vatnsleiðslur á tíu þeirra illa skemmdar eða gersamlega eyðilagðar, samkvæmt fréttum frá fulltrúum UNICEF í Líbanon.
„Ég hef aldrei séð slíka eyðileggingu,“ sagði sérfræðingur UNICEF í vatns- og hreinlætismálum, Branislav Jekic. „Hvert sem við förum spyrjum við fólk hvað það þurfi mest og svarið er alltaf það sama: Vatn.“ Jekic bætti við að mikill vatnsskortur gæti orðið þrándur í götu uppbyggingar á svæðinu.
„Fólk vill flytja aftur til síns heima. En aðgangur að vatni mun ráða úrslitum í því hvort það ákveður að vera þar til frambúðar.“
Sömu niðurstöðu er að vænta frá athugunum í Týrus og nágrenni. Til dæmis hefur verið tilkynnt um að vatnskerfi í 42 þorpum af 70 hafi verið eyðilögð.
Viðbrögð UNICEF
Hjálparstarf UNICEF er að komast á gott skrið eftir að vopnahléið hófst. Verið er að dreifa vatnsflöskum til að koma á móts við vatnskortinn. Síðan átökin hófust, 12. júlí, hefur meira en 250 þúsund lítrum af vatni verið dreift til þeirra sem verst urðu úti í árásunum, þ.e. til Bint Jubail, Ait el Shaab og Tíbnin.
Nú þegar er verið að senda 50 þúsund lítra af vatni á viku suður með bílum, en þessi tala mun koma til með að tvöfaldast fyrir helgi.
Verið er að koma upp vatnstönkum sem þjóna þörfum samfélagsins. Í þessarri viku var 40 vatnsblöðrum (úr gúmmíi), sem er hver er 5 þúsund lítra, komið til Nabatiyah og þorpa nálægt landamærum Ísraels. Samstarfsaðilar UNICEF, Islamic Relief og Mercy Corps, munu setja upp tankana og bera ábyrgð á að blöðrunum verði haldið í góðu lagi.
Langtíma uppbyggingarstarf framundan
Yfirmaður UNICEF í Líbanon, Roberto Laurenti, segir að samstarf við þau fjögur staðbundnu yfirvöld sem sjá um vatnskerfi landsins sé nauðsynleg uppbyggingarstarfi UNICEF á svæðinu.
„Samstarfssamningar við yfirvöld vatnskerfa í Beirút og Mount Líbanon þýðir að við megum veita stuðning þar sem þörfin er mest hverju sinni,“ sagði Laurenti. Hann sagði að með hjálp UNICEF, þ.e. að veita vatnsdælur og mótora, dísel og gera við eyðilagt kerfi, verður 30 þúsund kúbik metrum af vatni komið til þurfandi samfélaga daglega.
Síðan átökin hófust í Líbanon hefur UNICEF m.a.:
Komið 51 þúsund 5 þúsund lítra vatnstönkum til flóttamannastaða í Beirút, Aley, Metn og Chouf. Áætlað er að 23.500 manns hafi notið góðs af. Auk þess var 1x5000 lítra vatnstanki og 2x1500 lítra vatnstönkum komið til Marjayoun.
Komið yfir milljón lítrum af hreinu vatni til flóttamannastöðva í Beirút og Metn og nágrenni (300 þúsund lítrum vikulega).
Dreift 284.800 lítrum af vatni í flöskum til suðurhluta Líbanon.
Veitt 385 vatnspakka til Beirút, Mount Líbanon, Bekaa og fleiri staða. Þeir duga fyrir 78 þúsund manns.
Veitt 3150 pakka af vatnshreinsitöflum sem nær til 63 þúsund manna.
Dreift nauðsynlegum lyfjum, sem og saltupplausnum og lúsa-sjampói til 70 þúsund manna.
Veitt 16.300 börnum bólusetningu gegn mislingum. 9000 börn hafa fengið bólusetningu gegn mænusótt og A-vítamín.
Stuðlað að vitundarvakningu um þá ógn sem stafar af sprengjum sem liggja ósprungnar á víð og dreif. Notast var við sjónvarp og útvarp til að koma skilaboðum á framfæri og 100 þúsund bleðlum var dreift.
27.840 sápustykkjum var dreift til Beirút, Mount Líbanon, Bekaa og fleiri staða. Náð var til 101 þúsund manna.
269 þúsund bleyjum var dreift til Beirút, Mount Líbanon, Bekaa og fleiri staða sem 91 þúsund ungabörn nutu góðs af.
370 leikjapökkum með fótboltum, sippuböndum og öðru dóti til leikja var dreift til 21 þúsund barna.
Tölurnar tala sínu máli
Áætlaður fjöldi látinna (Líbanon): 1183
Áætlaður fjöldi særðra (Líbanon): 4000
Áætlaður fjöldi látinna (Ísrael): 97, 43 almennir borgarar
Áætlaður fjöldi særðra (Ísrael): yfir 200 (nýjustu tölur eru ófáanlegar)
Fjöldi flóttamanna: 262.174 manns eru enn heimilislaus, stór hluti býr hjá vinum og fjölskyldu.
Hlutfall barna í hópi flóttamanna innan Líbanon: 45%
Kostnaður eyðileggingar í Líbanon áætlaður í dollurum: 4 milljarðar USD.
Fjöldi skóla sem eru óstarfhæfir vegna þess að flóttamenn hafast þar við: 814.