yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn. Í lok dagsins bjuggu þau til nef til að minnast hans og krakkanna sem eiga bágt. Með meðfylgjandi mynd vill fyrsti bekkur Nesskóla „hvetja alla Norðfirðinga að styrkja þetta frábæra málefni.“