í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:
UNICEF þarf 805 milljónir bandaríkjadollara til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um neyðarástand, Humanitarian Action Report, sem kynnt var í dag, en þar er sérstaklega fjallað um ástandið í 29 löndum.
„Þar sem neyðarástand ríkir fá börn ekki þá grundvallarþjónustu og vernd sem þau þurfa,” sagði Ann M. Veneman framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í dag þegar skýrslan var kynnt í Genf. „Eftir síðasta ár, sem einkenndist af náttúruhamförum og viðvarandi neyðarástandi, eru milljónir barna og fjölskyldna sem hafa ekki mótstöðu gegn sjúkdómum, vannæringu og ofbeldi.”
Af þeim 805 milljónum dollara verður meira en þriðjungi, eða 331 milljón, varið til verkefna í Súdan. Viðvarandi átök og óöryggi í vesturhluta Darfur-héraðs hafa haft áhrif á 3,4 milljónir manna og ógna lífi 1,4 milljónum barna, en hálf milljón þeirra er undir fimm ára aldri.
Skýrsla UNICEF um neyðaraðstoð, Humanitarian Action Report (2006), veitir árlegt yfirlit yfir neyðaraðstoð og verkefni samtakanna. Skýrslan setur fram hvaða verkefni eru brýnust og hvað UNICEF þarf mikinn fjárstuðning til að geta mætt þörfum barna og kvenna í viðkomandi löndum.
Fjárstuðningur til neyðaraðgerða UNICEF hefur aldrei verið meiri en árið 2005, þökk sé örlæti milljóna manna um allan heim sem gáfu til fórnarlamba flóðbylgjunnar við Indlandshaf, jarðskjálftans í Pakistan og til annarrar neyðaraðstoðar. Á meðan ákveðnir harmleikir hafa fengið heimsathygli, undirstrikar Humanitarian Action Report neyðarástand í löndum sem hafa ekki fengið næga athygli. Þó svo fjárstuðningur við UNICEF síðastliðið ár hafi aldrei verið meiri, fengu aðeins fjögur neyðarsvæði af 25 yfir 50 prósent þess styrktarfés sem til þurfti.
„Að geta brugðist fljótt við með árangursríkum hætti þar sem neyðarástand ríkir er nauðsynlegt til að hægt sé að mæta langtíma þróunarmarkmiðum,” sagði Dan Toole, yfirmaður neyðaraðgerða UNICEF þegar skýrslan var kynnt í Genf í dag. „Í mörgum þessarra landa búa börn við næstum viðvarandi neyðarástand vegna fátæktar og vegna þess að þau hafa ekki aðgang að menntun eða grunnheilsugæslu.”
Skýrslan sem kynnt er í dag greinir frá sértækum þörfum og verkefnum UNICEF í löndum þar sem neyðarástand ríkir og setur fram áætlanir um fjárþarfir til verkefnanna. Eftirfarandi svæði þurfa brýna aðstoð:
• Súdan: Auk þess sem var nefnt hér að ofan, hafa um 17 milljónir manna ekki aðgang að hreinu vatni og meira en 20 milljónir hafa ekki aðgang að viðunandi hreinlætisaðstöðu. Hvert ár, deyja 100 þúsund súdönsk börn undir fimm ára aldri af orsökum sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir.
• Austur- og Suður-Afríka: Þessi hluti álfunnar hefur þurft að þola meiri neyð síðastliðinn áratug en nokkuð annað svæði í heiminum, þar á meðal núverandi þurrkatíma, HIV/alnæmis-faraldurinn og útbreiddan næringarskort meðal barna.
• Mið- og Austur-Evrópa og Samveldi sjálfstæðra ríkja (Commonwealth of Independent States): Í mörgum löndum á svæðinu eru stunduð vopnuð átök, þar eru viðkvæm vopnahlé og viðvarandi spenna, auk þess ógna náttúruhamfarir svæðinu.
• Suður-Asía: Þar er mesti fjöldi barna sem býr við algjöra fátækt eða 330 milljónir barna sem þjást vegna þess að þau njóta ekki tveggja eða fleiri þátta grundvallarþjónustu (þ.e. hafa ekki skjól, njóta ekki aðgangs að vatni, hreinlæti, fæði, heilsugæslu eða menntun).
• Austur-Asía og Kyrrahafið: Þörf fyrir neyðaraðstoð var mikil í kjölfar flóðbylgjunnar, en svæðið þarf að takast á við fleiri ógnir, eins og t.d. fuglaflensuna. Í nokkrum löndum hafa þurrkar og hlýindi aukið líkurnar á fæðuskorti og sjúkdómum sökum skorts á hreinu vatni.
• Miðausturlönd og Norður-Afríka: Ástandið í Írak er talið mesta vandamálið á svæðinu, ásamt viðvarandi ofbeldi á hernumdu svæðum Palestínu, sem hefur mikil áhrif á börn og ungmenni.
Neyðaraðstoð felst í að hjálpa fólki að komast af og veita því grundvallarþjónustu, sem og þjálfun í kennslu, barnavernd, hreinlæti, næringu og heilsugæslu. UNICEF veitir aðgang að menntun með því að dreifa skólapakka (School-in-a-box), meðhöndlar börn sem þjást af vannæringu, veitir aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, bólusetur tugi milljóna barna gegn mislingum og öðrum sjúkdómum, og fær börn frelsuð úr ánauð hermennsku, auk annarra mikilvægra verkefna.
Skýrslan fjallar um sérstaklega neyðarástand í eftirfarandi löndum:
Angóla
Afganistan
Búrúndí
Miðafríkuríkinu
Chad
Kólumbíu
Vestur-Kongó (Brazzaville)
Austur-Kongó (Kinshasa)
Fílabeinsströndinni
Norður-Kóreu
Eritrea
Eþíópía
Georgía
Gíneu
Haítí
Kenía
Líberíu
Malaví
Mósambík
Nepal
Norður-Kákasus (tétsnía)
Hernumdum svæðum Palestínu
Sómalíu
Súdan
Svasílandi
Tansaníu
Úganda
Zambíu
Zimbabve