Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram

Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram þar sem áætlað er að útrýma sjúkdómnum árið 2007. Ljóst er að UNICEF og samstarfsaðilar hafa mikið verk fyrir höndum til að það megi nást. UNICEF í Nígeríu sendi upplýsingar um stöðu mála þar í landi. Þann 3. febrúar 2006 höfðu 786 mænusóttartilfelli verið staðfest í 21 héraði í Nígeríu fyrir árið 2005. Til samanburðar voru tilfellin 779 í 30 héruðum árið 2004. Enn er Nígería með hæsta hlutfall mænusóttartilfella í heiminum og í dag er það 41%.

Flest tilfelli hafa greinst í átta héruðum í norðri eða 90% þeirra sem greinast í Nígeríu. Það eru héruðin Bauchi, Jigawa, Kaduna, Kano, Katsina, Kebbi, Zamfara og Sokoto. Þetta sýnir að vírusinn hefur horfið frá mörgum héruðum í suðurhluta landsins og er nú aðallega bundinn við afmörkuð svæði þar sem smithættan er mjög mikil.

Árið 2005 voru haldnar fjórar bólusetningarherferðir (e. National Immunization Days) og tvö minni þar sem útbreiðsla mænusóttar er sérstaklega mikil. Þar má nefna bólusetningarátak í norðurhluta landsins í ágúst og september 2005.

Árið 2006 er áætlað að halda fleiri stórar bólusetningarherferðir sem ná yfir allt landið og einnig fleiri minni herferðir til að stöðva mænusóttarsmit. Fyrstu bólusetningarherferðirnar verða haldnar 11.-14. febrúar og 11.-14. mars. Áætla er að halda minni bólusetningarherferðir í norðurhéruðum landsins 27.-30. maí og 24.-27. júní 2006.

Í hverju átaki er meira en 40 milljónum barna undir fimm ára aldri veitt bólusetning. Til að bólusetja öll þessi börn þarf 138 þúsund manna lið sem gengur hús úr húsi, 14 þúsund farartæki (hjól, bílar, mótorhjól, bátar, o.s.frv.) og 45 milljónir bóluefnisskammta til að ná til hvers einasta barns. Um 498 þúsund kælibox eru notuð til að halda bóluefninu kældu þrátt fyrir heitt loftslag.

Þó svo verið sé að ná til mikils fjölda barna sýna tölfræðilegar greiningar að í sumum héruðum er einhver hluti barna undir fimm ára aldri sem hefur ekki fengið bólusetningu vegna ýmissa ástæðna, m.a. því að þeim er meinað um bólusetningu af forráðamönnum sínum. Verið er að móta nýjar leiðir til að ná til þessa hóps.

UNICEF vinnur með trúarleiðtogum og öðrum leiðtogum samfélagsins til að ná til allra barna. Síðan í júlí 2004 eru öll héruð Nígeríu með í átakinu og framfarir eru miklar þar sem færri héruð hafa tilkynnt um smit síðan í september 2004 og náð er til fleiri barna í hverri umferð.

Í alls 18 löndum, þar sem talið var að mænusótt hefði verið útrýmt, hafa greinst mænusóttartilfelli sem rekja má til Nígeríu. Á árunum 2003-2004 varð aukning á smiti í Nígeríu og hindranir urðu á vegi UNICEF, s.s. eins og að erfitt var að fá fólk til að þiggja bólusetningu í Norðurhéruðum landsins. Árið 2004 var Nígería með flest tilfelli í heiminum eða 789 sem er 62% allra tilfella. Hlutfall tilfella er mest í Nígeríu enn í dag þó það sé ekki eins hátt og fyrir tveimur árum síðan.

Að sögn sérfræðinga þarf a.m.k. 12 mánuði til viðbótar til að stöðva smit mænusóttar í Nígeríu.