Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Rauðu nefin komin í verslanir um allt land

Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð. Hvert nef kostar aðeins 500 krónur en reynt er að hafa verðið í lágmarki því bannað er að skilja útundan! Barnmargir foreldrar geta því keypt á allann krakkaskarann og sjálfa sig líka! Nánar um átakið á www.rauttnef.is.