126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Fótboltafélagið Barselóna og UNICEF kynntu í gær samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum. Þau fyrstu sem munu njóta góðs af samstarfinu eru börn sem hafa orðið fórnarlömb HIV/alnæmis í Svasílandi. Barselóna kynnti nýja treyju fyrir árið 2006-2007 sem skartar UNICEF lógóinu að framan. Þetta er í fyrsta skipti í 107 ára sögu félagsins sem félagið hefur sett merki eða lógó á treyjurnar.
134 milljónir á ári
Auk þess að merkja treyjurnar með UNICEF merkinu mun fótboltafélagið (FCB) veita a.m.k. 1,5 milljónum evra (tæpar 134 milljónir króna) á ári næstu fimm árin til verkefna UNICEF um allan heim. Fjárstuðningnum verður fyrst varið til HIV verkefna í Svasílandi sem miðar að því að koma í veg fyrir smit milli móður og barns, veita lyf og heilsugæslu til HIV smitaðra, byggja upp forvarnarstarf til að koma í veg fyrir smit meðal ungmenna og veita börnum, sem hafa orðið munaðarlaus vegna HIV/alnæmis, umönnun.
„Samstarfið við Fótboltafélag Barselóna mun hjálpa okkur að veita þúsundum barna nýja von,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, þegar samstarfið var kynnt í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. „Lið Barselóna hefur sýnt og sannað að íþróttir eru öflugt og jákvætt afl fyrir börn.“
Meira en fótboltafélag
Góðgerðarstarf fótboltafélagsins á sér langa sögu og hefur ávalt unnið gott starf í þágu félags,- menningar,- menntunar,- og þróunarmála í Katalóníu. Félagið hefur fært út kvíarnar í góðgerðarstarfi sínu síðustu árin undir yfirskriftinni „Meira en fótboltafélag“ (e. More than a club).
„Við í Barselóna erum mjög meðvituð um þá alþjóðlegu hlið sem fótboltinn hefur. Ótrúlegur fjöldi stuðningsmanna hefur bæst við liðið á síðustu árum og félaginu ber skylda til að bregðast við þessarri jákvæðu bylgju. Besta leiðin til að gera það er að nota fótboltann sem tæki til að gefa þúsundum bágstaddra barna um allan heim nýja von,“ sagði Joan Laporta, forseti fótboltafélagsins Barselóna.
Bágstödd börn í Svasílandi njóta góðs af
Á fyrsta ári samstarfsins munu börn sem hafa orðið fórnarlömb HIV/alnæmis í Svasílandi njóta góðs af fjárframlaginu. UNICEF í Svasílandi berst hart fyrir því að stöðva útbreiðslu alnæmis, en þröskuldarnir eru margir. Landið er með hlutfallslega hæstu tíðni HIV smita í heiminum. Árið 2004 mældust 43% þungaðra kvenna HIV jákvæðar af þeim sem komu í blóðprufur. En aðeins 10% af þunguðum HIV jákvæðum konum fá viðeigandi lyfjameðferð til að verja ófætt barn sitt frá smiti.
Ómetanlegur stuðningur
Fjárstuðningurinn á fyrsta ári samstarfsins mun koma til með að bæta líf barna í Svasílandi með ýmsum hætti. Menntunar og íþróttaverkefni verða styrkt til að hægt verði að veita betri vernd, umönnun og stuðning við börn sem hafa orðið munaðarlaus vegna alnæmis. Með þessum sömu verkefnum verður einnig lögð áhersla á forvarnarstarf, þ.e. að fræða almenning um HIV/alnæmi. Börnum og mæðrum þeirra verður veitt lyfjameðferð sem kemur í veg fyrir smit frá móður til barns og hægt verður að auka lífslíkur smitaðra barna með því að veita þeim alnæmislyf. Veneman sagði að lokum: „Þessi stuðningur er ómetanlegur.“
UNICEF hóf alþjóðlegt alnæmisátak í október 2005 og er leiðandi í baráttunni gegn sjúkdómnum. Markmið átaksins er að vekja athygli á því að börn eru stór hluti fórnarlamba HIV/alnæmis og að ekki megi gleyma þeim þegar brugðist er við sjúkdómnum í þróunarstarfi.
Sjá nánar á vef fótboltafélagsins Barselóna og á alþjóðlegum vef UNICEF.