Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Bindum endi á misnotkun barna í Simbabve

Eftir fréttir þess efnis að skólastjóri hafi verið kærður vegna ásakana um hafa nauðgað sex nemendum í barnaskóla hefur UNICEF brugðist harkalega við og hafið herför gegn misnotkun barna í Simbabve.
UNICEF telur það mjög alvarlegt að kynferðisofbeldi og önnur misnotkun á börnum hafi aukist í Simbabve. Sérstaklega alvarlegt er að misnotkun barna í barnaskólum að hálfu starfsmanna í ábyrgðastöðum er hvað mest áberandi.
Á síðasta ári voru skráð rúmlega 4000 tilfelli kynferðislegrar misnotkunar gegn börnum í einungis einu héraði í landinu.

Fjölgun tilfella þrátt fyrir aukna vitund
Íbúar Simbabve eru meðvitaðri um misnotkun gagnvart börnum en áður og stjórnvöld hafa gert sitt í að koma á barnvænni löggjöf. Þrátt fyrir það er tilfellum stöðugt að fjölga. Nýlega voru starfsmenn ákærðir fyrir að misnota 52 stúlkur úr heimavistarskóla í litlum bæ rétt fyrir utan höfuðborg landsins. Einnig voru 14 stúlkur í barnaskóla í bænum Harare taldar hafa verið misnotaðar að hálfu starfsfólki skólans.

„Misnotkun gegn börnum er alls ekki liðin”
UNICEF hefur í samstarfi við stjórnvöld í Simbabve og ýmis samtök hafið herferð í landinu með fyrirsögninni „Misnotkun gegn börnum er alls ekki liðin”. Þetta þýðir að allt ofbeldi og misnotkun gagnvart börnum er alls ekki ásættanleg og ber að stöðva.
Hluti af herferðinni felst í því að styðja við og þjálfa opinbera aðila eins og lögreglu, fréttamenn, opinbera starfsmenn, sjálfboðaliða og kennara í að meðhöndla þau börn sem hafa orðið að þola misnotkun. Til að mynda er þeim kennt að þekkja hver einkenni barna eru sem beitt hafa verið ofbeldi og hjálpa til við að stofna og styðja við barnasamtök sem börnin sjálf eru þáttakendur í.

Hreyfa við samfélaginu
UNICEF telur að ef stöðva á þá sem beita ofbeldi þá þurfa stjórnvöld að koma því skýrt til skila að ofbeldi gagnvart börnum sé ekki liðið. Það þarf að fræða fólk til að fá það til að hafa skoðun á málinu og bregðast rétt við í þeim tilfellum sem grunur leikur á að barn hefur verið misnotað. Einnig þarf að fræða börnin sjálf svo þau geti sagt til þeirra sem misnota þau og gefi þeim sjálfstraust til að tjá sig um verknaðinn. Þögnin er óvinur barnanna og gerir ofbeldismönnum kleift að fela sig í skjóli hennar.
UNICEF segir einnig að þeim börnum sem er nauðgað eru í mestri hættu á að sýkjast af alnæmi og vill koma þeim skilaboðum til allra íbúa Simbabve að vernda þessi „ósýnilegu” börn. Misnotkun í æsku getur haft áhrif á barnið alla ævi.