Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Skólar opna aftur á Fílabeinsströndinni

Ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að taka upp próf að nýju og mun það gera 80 þúsund nemum kleift að taka þau próf sem nauðsynleg eru til að halda áfram menntun sinni. Vegna mikilla óeirða í landinu hefur réttur barna til náms verið margbrotinn og síðastliðinn tvö ár hafa grunn - og menntaskólanemar í Norðurhéruðum landsins ekki getað klárað nám sitt með lokaprófum sem hefur heft skólagöngu þeirra.

UNICEF þykir það skref í rétta átt að réttur barna til náms verði virtur að nýju, enda er þessi réttur eitt af ákvæðum barnasáttmálans sem var staðfestur á Fílabeinsströndinni árið 1991.

Sökum óeirðanna í landinu flúðu kennarar í Norðurhéruðunum sem olli því að að rúmlega milljón börn misstu tvö ár úr skóla. Kennsla féll algerlega niður inní skólanum og ekki var lengur hægt að taka gild próf þar sem viðurkennda kennslu vantaði.

Starfsfólk UNICEF hefur haldið ótrautt áfram að kynna aðgengi að menntun fyrir börn landsins eins vel og mögulegt er miðað við erfiðar aðstæður. Til að mynda hefur kennsluefni með áherslu á félags-og sálfræði verið dreift fyrir börn og kennarar til hjálpar þeim sem hafa lent í erfiðum aðstæðum vegna ástandsins í landinu.

Árið 2005 unnu ýmsar deildir innan Sameinuðu þjóðanna að því að koma aftur á sérstöku skólaverkefni. Þetta verkefni heldur áfram í dag enda hefur árangurinn verið góður. Til að mynda hafa 200 skólar endurnýjað kennsluefnið, 550 þúsund skólapökkum hefur verið dreift í skóla með sérstaka áherslu á gögn handa stelpum, félagsleg afþreying hefur verið skipulögð og útvarps- og sjónvarpsmiðlar hafa verið notaðir til að senda út skilaboð um rétt barna til menntunar.

UNICEF ítrekar skuldbindingu sína og loforð um stuðning við ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar til að endurvekja aðgang að góðri menntun fyrir börn í landinu og styðja opnun skóla í Norðurhéruðunum sem verður að veruleika næstu daga.