Vissir þú að...

á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.

Þú ert hér:  

Eflum vald kvenna til hjálpar börnum

Samkvæmt skýrslunni leiðir jafnrétti kynjanna til „tvöfalds arðs“ fyrir bæði konur og börn og er nauðsynlegt fyrir heilbrigði og þróun fjölskyldna, samfélaga og þjóða.

„Náin tengsl eru milli jafnréttis kynjanna og velferðar barna,“ sagði framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Ann M. Veneman. „Þegar konur fá fleiri tækifæri í lífinu munu börn og fjölskyldur hagnast á því.“

Þrátt fyrir að ákveðnar framfarir á réttindum kvenna á síðustu áratugum geta milljónir stúlkna og kvenna enn ekki lifað lífi sínu til fulls vegna mismununar, lítilla valda og fátæktar. HIV og alnæmi hefur mikil áhrif á líf kvenna og nánast alls staðar í heiminum fá konur lægri laun en karlar fyrir sömu störf. Milljónir kvenna um allan heim þurfa að þola líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi, án þess að hafa greiðan aðgang að réttarkerfinu. Mismunun veldur því að stúlkur eru ólíklegri til að sækja skóla; nærri ein af hverjum fimm stúlkum sem skráir sig í grunnskóla í þróunarlöndunum lýkur ekki grunnmenntun. Menntunarstig kvenna helst í hendur við heilsu og velferð barna og þróun samfélaga, segir í skýrslunni.

„Ef okkur er annt um heilsu og velferð barna í dag og í framtíðinni, verðum við að tryggja það að konur og stúlkur hafi sömu tækifæri í lífinu og drengir, til dæmis á að mennta sig, á þátttöku í ríkisstjórnum, efnahagslegu sjálfstæði og að þær fái vernd gegn ofbeldi og mismunun,” sagði Veneman.

Leiðarvísir að jafnrétti kynjanna
Í skýrslunni eru nefndar sjö aðferðir sem geta aukið jafnrétti kynjanna:
• Menntun: Afnám skólagjalda er lykilatriði og hvetja verður foreldra og samfélög til að fjárfesta í menntun stúlkna.
• Fjármál: Samþætta verður markmið um útrýmingu kynjamisréttis við fjárhagsáætlanir og fjárlög ríkisstjórna.
• Lög: Lög er varða eignir og erfðarétt skulu tryggja jafnan rétt kvenna. Einnig verður að koma á aðgerðum til að koma í veg fyrir og bregðast við heimilisofbeldi og kynbundnu ofbeldi í stríðum.
• Lögleiða kvóta: Kvótar hafa sannað sig sem aðferð til að tryggja þátttöku kvenna í pólitík. Af 20 löndum, sem hafa hæsta hlutfall kvenna á þingi, eru 17 þeirra sem nota einhvers konar afbrigði af kvóta.
• Konur efla völd kvenna: Grasrótarsamtök kvenna hafa reynst góður málsvari fyrir réttindum kvenna og ætti að auka þátttöku þeirra í stefnumótun stjórnvalda svo að verkefni séu hönnuð með þarfir kvenna og barna í huga.
• Þátttaka karla og drengja: Að mennta karla og drengi, sem og konur og stúlkur, um kosti kynjajafnréttis og sameiginlegar ákvarðanatökur getur ýtt undir betra samstarf.
• Auknar rannsóknir og tölulegar upplýsingar: Nauðsynlegt er að bæta rannsóknir og tölulegar upplýsingar um mæðradauða, ofbeldi gegn konum, menntun, atvinnuþátttöku, laun, ólaunaða vinnu kvenna og þátttöku í stjórnmálum.

Útilokaðar frá ákvarðanatökum heimilisins
Í skýrslunni kemur fram að konur eru útilokaðar frá mikilvægum ákvarðanatökum innan veggja heimilisins, sem hefur slæm áhrif á börn. Í tíu af 30 þróunarlöndum, sem skoðuð voru, höfðu aðeins 50 prósent kvenna eitthvað að segja um ákvarðanir heimilisins, þ.e. um fjárútlát, eigin heilsuvernd eða heimsóknir til vina eða ættingja.

Útrýming kynjamisréttis og aukin völd kvenna mun hafa jákvæð áhrif á velferð barna, samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, The State of the World’s Children 2007, sem gefin er út á 60 ára afmæli samtakanna. Skýrslan greinir frá aðstæðum barna um allan heim út frá tíðni ungbarnadauða, lífslíkum, heilsu, HIV/alnæmi, menntun og fleiru. Aðstæður barna á Íslandi eru góðar í samanburði við önnur lönd heims og enn er Ísland meðal þeirra landa sem hafa lægsta tíðni ungbarnadauða.

Geta kvenna til að stjórna eigin lífi og taka ákvarðanir sem hafa áhrif á fjölskylduna er nátengt heilsufari og menntunarstigi barna, segir í skýrslunni. Í fjölskyldum þar sem konan sér um lykilákvarðanir er meiri tíma og peningum varið til barna en á þeim heimilum þar sem konur hafa minni völd.

Rannsókn á vegum International Food Policy Institution segir að ef karlmenn og konur hefðu jafnmikil völd í ákvarðanatökum myndu tilvik vannærðra barna undir þriggja ára fækka um 13 prósentustig í Suður-Asíu. Það myndi leiða til þess að 13,4 milljónum færri börn yrðu vannærð á svæðinu. Í sunnanverðri Afríku fengju 1,7 milljónir barna betri næringu.

Launamunur kynjanna
Aukin fjárráð kvenna leiða til betri afkomu barna. Launamisrétti kynjanna takmarkar því möguleika barna á að njóta sjálfsagðra réttinda eins og réttinn til heilsugæslu, næringar og menntunar.
Áætlað er að konur fái 30% af því sem karlmenn vinna sér inn ef litið er til launamunar kynjanna og þátttöku á vinnumarkaði á Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Hlutur kvenna er um 40% af launum karla í Rómönsku Ameríku og Suður-Asíu, 50% í Sunnanverðri Afríku og um 60% í Austur-Evrópu, fyrrum ríkjum Sovétlýðveldisins, Austur-Asíu og iðnríkjunum.

Stjórnmál
Aukin þátttaka kvenna í stjórnmálum getur haft jákvæð áhrif á velferð barna. Komið hefur í ljós að bæði í iðnríkjunum og þróunarlöndunum hefur aðkoma kvenna að löggjafarvaldinu haft sérstaklega jákvæð áhrif á málefni barna. Samt sem áður eru aðeins 17% kvenna þingmenn á heimsvísu, samkvæmt tölum frá júlí 2006.

Lykillinn að góðum samfélögum
Kostir jafnréttis kynjanna eru miklu fleiri en talið getur til beinna áhrifa á börn. The State of the World’s Children sýnir fram á að með því að ýta undir jafnrétti kynjanna og auka völd kvenna, sem er þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer þrjú, mun það hjálpa til við að ná öllum öðrum markmiðunum. Allt frá því að draga úr fátækt og hungri til þess að bjarga lífi barna, tryggja menntun, berjast gegn HIV/Alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum og tryggja verndun umhverfisins.

Um UNICEF
Í 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í nær 160 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna.