Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Fimm fyrirtæki gerast bakhjarlar UNICEF á Íslandi

Í dag skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins; Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip, undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi. Með samningnum styrkja fyrirtækin stoðir Barnahjálparinnar á Íslandi og gera samtökunum kleift að auka fjáröflunarstarf sitt til muna. Með þessu samstarfi sýna fyrirtækin frumkvæði og styrk sem mun stuðla að bættum heimi fyrir börn.