Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Leikskólakrakkar selja myndir til styrktar UNICEF

Nemendur og kennarar leikskólans Vesturbergs héldu Listahátíð þann 11.maí í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Haldin var myndlistasýning með myndum eftir leikskólakrakkana að dagskrá lokinni og stóð sýningin yfir í nokkra daga. Verkin hafa síðan verið til sölu og seldust upp nú í júní og rann ágóðinn til UNICEF Ísland. Þessir frábæru krakkar söfnuðu hvorki meira né minna en 92.000 krónum og erum við ákaflega þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning.
TAKK KRAKKAR!