Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

UNICEF kynnir styrkveitingu til verkefnis í Nígeríu

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, mun kynna stuðning fjölda íslenskra fyrirtækja og einstaklinga við stórt styrktarverkefni Barnahjálparinnar í Nígeríu fimmtudaginn 4. maí nk. Um er að ræða sameiginlegt átak nokkurra fyrirtækja sem stunda viðskipti í Nígeríu, auk annarra fyrirtækja og einstaklinga. Vegna samstöðu og styrk þessarra aðila verður hægt að bjarga lífi þúsunda barna í Nígeríu. Tilkynnt verður um verkefnið á fundi sem opinn verður fjölmiðlum og almenningi 4. maí kl. 10:30 í nýju húsnæði Lýsis hf. að Fiskislóð 5.