English version

Svasíland með augum Sigur Rósar

Á haustdögum ferðaðist hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til að kynna sér HIV-verkefni samtakanna þar í landi. Ferðin hafði mikil áhrif á hljómsveitina og ákváðu þeir að efna til sýningar á ljósmyndunum sem þeir tóku í heimsókninni. Sýningin ber yfirskriftina: Yfirgefna kynslóðin: Svasíland með augum Sigur Rósar.

Sýningin er í versluninni Liborius, Mýrargötu 3 og stendur yfir frá 30. nóvember til 7. desember. Ljósmyndirnar verða seldar hæstbjóðendum og verður tekið við tilboðum til 7. desember. Allur ágóði rennur óskiptur til styrktar alnæmisverkefnum UNICEF í Svasílandi, en þar er hæsta hlutfall HIV-smitaðra í heiminum. 

HIV/alnæmi er meira en sjúkdómur
Í Swasílandi er hæsta hlutfall HIV-smitaðra í heiminum. Af um milljón íbúum þessa litla lands eru 40 prósent HIV-smitaðir – nærri önnur hver manneskja. Alnæmi er þó meira en sjúkdómur. Í Svasílandi er alnæmi einnig pólitískt og félagslegt vandamál. Alnæmi breytir heilu samfélögunum og skilur þau eftir í rúst. Heil kynslóð þurrkast út og fjölskyldur missa fyrirvinnuna. Algengt er að börn alist upp hjá öfum og ömmum sínum og auk þess lenda æ fleiri börn í því að verða höfuð heimilisins um 10 til 12 ára aldur. Alnæmi er að eyðileggja félagslegt skipulag samfélaga víða í Afríku.

Konur og börn eru sá hópur sem verður hvað mest fyrir barðinu á sjúkdómnum. Konur og börn eru iðulega þau sem veita sjúkum og aðstandendum þeirra heilsugæslu og umönnun. Yfir 70 þúsund börn eru munaðarlaus vegna alnæmis og af þeim eru a.m.k. 15 þúsund sem búa ein og hafa í raun litla möguleika á að sinna sínum grundvallarþörfum. 

Alnæmis-verkefni UNICEF í Svasílandi
SWAPOL (e. Swaziland for Positive Living) var stofnað af fimm konum árið 2001 til að bregðast við þeim vandamálum sem steðjuðu að stækkandi hópi HIV-smitaðra í Svasílandi. Þær vildu berjast gegn neikvæðri stimplun samfélagsins og þeirri mismunun sem HIV smitaðir verða fyrir.

Grundvallarmarkmið SWAPOL er að veita smituðum og fjölskyldum þeirra stuðning og berjast fyrir vitundarvakningu í samfélaginu. Markmiðin eru eftirfarandi:
- Að veita fræðslu í sveitasamfélögum um HIV/alnæmi, lyfjagjöf og hvernig megi koma í veg fyrir smit.
- Að fræða smitaða um hvernig megi rækta næringaríkari korn og baunir og skipuleggja samfélögin til að samnýta gæðin,
- Að veita ráðgjöf til HIV-smitaðra, aðstandenda þeirra og syrgjandi fjölskyldna,
- Að reyna að koma upp sjálfbærum verkefnum sem gefa HIV-smituðum auknar tekjur,
- Að veita mjög veikum og rúmliggjandi einstaklingum umönnun, jafnvel þeim sem eru ekki meðlimir SWAPOL,
- Að veita munaðarlausum og varnarlausum börnum umhyggju og vernd,
- Að auka aðgang að alnæmisprófum og lyfjum,
- Að koma í veg fyrir smit frá móður til barns.

SWAPOL er meira en stuðningur við HIV-smitaða. Markmið SWAPOL veita heildstæða aðstoð til smitaðra, fjölskyldna þeirra og samfélagsins alls. Miðað við mjög hátt hlutfall HIV smitaðra í landinu er mikil þörf á að efla SWAPOL enn frekar. 

Fastur punktur í tilverunni fyrir munaðarlaus og bágstödd börn
Síðan árið 2004 hefur UNICEF unnið náið með sveitasamfélögum í Svasílandi við að byggja upp miðstöðvar fyrir munaðarlaus og bágstödd börn (e. Neighbourhood Care Point). Þar fá börn mat, skjól og umönnun.

Fylgst er náið með aðstæðum þeirra og þau fá hvatningu til að sækja skóla. Þeim er veitt sálræn aðstoð og hjálp við að takast á við sorg og foreldramissi. Fyrir börn sem eiga HIV-smitaða foreldra eða börn sem þegar eru orðin munaðarlaus er miðstöðin oft eini fasti punkturinn í tilveru þeirra. UNICEF styður nú 438 miðstöðvar sem ná til 33 þúsunda barna.

Ef þú kaupir ljósmynd styrkir þú þessi verkefni. Þörfin er mikil. Taktu þátt með okkur.