Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Þurrkar ógna börnum í austurhluta Afríku

Samkvæmt skýrslu sem kemur út í dag mun UNICEF leggja ríkari áherslu á mannúðaraðstoð í ríkjum austurhluta Afríku, þ.e. Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu en verið hefur.

Í tilkynningu UNICEF segir að þrátt fyrir rigningartímabil í apríl ógnar einn mesti þurrkur í norðurhluta Afríku í áraraðir nú lífi og heilsu tuga þúsunda barna í Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu. Þessi þurrkur hefur þegar dregið helming búfénaðar í þessum löndum til dauða og telur UNICEF að fólk sem lifir á hirðingjabúskap og börn þeirra séu í mestri hættu.

Á síðastliðnum árum hafa þurrkar í austurhluta Afríku sífellt versnað. Árið 2000 dóu tæplega 100.000 manns vegna þurrka í sama héraðinu. Meirihluti þeirra sem þurrkarnir hafa áhrif á eru hirðingjarnir og fjölskyldur þeirra sem flakka um löndin Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu í leit að æti fyrir hjarðir sínar.

Um átta milljónir manna hafa orðið fyrir verulegum áhrifum vegna þurrkana og þurfa aðstoð, þar á meðal um 1.6 milljón börn yngri en fimm ára.

Það sem UNICEF vill helst koma á framfæri vegna þessara aðstæðna er eftirfarandi:

# Þúsundir barna eru svo vannærð að þau munu deyja á næstkomandi mánuðum.
# Rigningarnar gerðu í raun illt verra á sumum svæðum, búfénaður drapst, malaríutilfelli og aðrir sjúkdómar blossuðu upp, nýleg uppskera skolaðist burt og vatnsból menguðust.
# Meirihluti barna sem þjást vegna þurrkana eru börn hirðingja í austurhluta Afríku.
# Þessa síendurteknu ógn vegna þurrka í austurhluta Afríku er hægt að forðast með því að veita hirðingjum greiðan aðgang að þjónustu hvar sem þeir eru staddir sem gefur þeim stuðning við það líf sem þeir lifa.

UNICEF, aðrar UN stofnanir og samstarfsmenn á þessu svæði hafa þegar byrjað að aðlaga verkefni sem henta betur fyrir þarfir hirðingjanna. Tvö dæmi eru hreyfanlegar heilsugæslueiningar fyrir ung börn og fjárhagslegur stuðningur við þjálfun kennara sem geta ferðast með fjölskyldum þegar þau fara um svæði í leit að vatni og mat fyrir búfénað sinn.
Minna en einn þriðji af UNICEF mannúðaraðstoð í austurhluta Afríku hefur verið fjármagnaður af styrktaraðilum.

Sjá nánari umfjöllun á http://www.unicef.org/childalert/hornofafrica/