UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Á dögunum heimsótti Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, birgðastöð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem hún kynnti sér hvernig UNICEF pakkar og sendir hjálpargögn til barna um allan heim.
„Það var sérstaklega ánægjulegt að heimsækja birgðastöð UNICEF og verða vitni að því mikilvæga starfi sem þar er unnið í þágu barna í þróunarríkjum. Mikil þekking og fagmennska einkenndi þar alla starfshætti og ég var þess fullviss að heimsókn lokinni að fé til UNICEF er vel varið,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir um heimsóknina.
Þegar ráðherra heimsótti birgðastöðina voru starfsmenn að pakka hjálpargögnum til Norður-Kóreu. Einnig gaf að líta skólapakka (e. School-in-a-box), sem er einn af algengustu pökkum UNICEF, tæki til mæðraverndar, saltupplausnir (e. Oral rehydration salt) og malaríu flugnanet.
Um birgðastöð UNICEF
Birgðastöðin í Kaupmannahöfn, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF. Á síðasta ári voru send hjálpargögn að jafnvirði 1,1 milljarði dollara eða tæpum 77 milljörðum íslenskra króna til barna og fjölskyldna þeirra í 155 löndum og svæðum. Aðgangur að nauðsynjavörum er réttur barna og mikilvægur hluti af áætlun UNICEF um að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun.
UNICEF veitir 40% allra barna í heiminum bóluefni og er stærsti kaupandi moskító flugnaneta og saltupplausna í heiminum. Árið 2005 sendi UNICEF skólagögn sem hjálpuðu 9 milljónum barna að sækja aftur skóla. Síðustu árin hefur forgangsverkefni birgðastöðvarinnar verið að berjast gegn útbreiðslu malaríusmits og hefur dreifing á moskító flugnanetum og skordýraeitri til sunnanverðrar Afríku aukist um allt að 175% á milli ára.
Í samræmi við áherslu UNICEF á HIV/alnæmi hefur útbreiðsla á HIV-lyfjum og tækjum til prófunar á vegum samtakanna stóraukist. Í síðasta ári veitti UNICEF HIV-lyf til 42 landa.
Hjálpargögnum er hægt að pakka, senda og dreifa á mjög stuttum tíma, en hraði getur skipt sköpum fyrir líf barna þegar neyðaraðstoð er annars vegar. Hver pakki inniheldur allar nauðsynjar fyrir viðkomandi verkefni og stað, og notkunarleiðbeiningar fylgja með svo hægt sé að nota þær strax þegar þeim er dreift til t.d. afskekktra skóla, heilsugæslustöðva eða flóttamannabúða.