Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Barnasáttmálinn verður fullorðinn

© UNICEF ÍslandÚtbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. Sjá nánar á pdf-skjali. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Þar mun meðal annarra fulltrúi frá alþjóðlegu barnaréttarnefndinni, Lucy Smith, tala um sáttmálann og Ísland í alþjóðlegu samhengi. Einnig verður kynnt nýtt íslenskt rit sem ber heitið Barnasáttmálinn: Rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi. Ritið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en það er í ritstjórn Þórhildar Líndal, sem gegndi starfi umboðsmanns barna í tíu ár og er núverndi mannréttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar.

Á Íslandi öðlaðist Barnasáttmálinn formlega gildi 27. nóvember 1992. Um leið skuldbinda yfirvöld sig til að fræða almenning, og ekki síst börn í landinu, um sáttmálann. Um þessar mundir liggur fyrir þingsályktunartillaga á Alþingi um lögfestingu Barnasáttmálans á Íslandi. Með málþinginu vill UNICEF á Íslandi efla þekkingu á réttindum barna og hvetja til meiri umræðna um þennan merka sáttmála á Íslandi.

2,2 milljarðar barna njóta viðurkenningar á réttindum sínum.

UNICEF telur Barnasáttmálann ekki einungis vera lagalegt verkfæri. Hann stendur fyrir þá hugmynd að börn þurfi sérstaka lagalega vernd og að það sé á allra ábyrgð að tryggja réttindi barna. Þökk sé Barnasáttmálanum hafa þessi réttindi verið í stöðugt meiri forgrunni í baráttunni fyrir mannréttindum og heimurinn hefur orðið vitni að afdrifaríkum úrbótum á málefnum barna. Dregið hefur úr ungbarnadauða og fjölda þeirra barna sem vinna hættuleg störf. Baráttan gegn hættulegum barnasjúkdómum eins og mislingum og mænuveiki hefur einnig gengið vonum framar.

Alls hafa 191 ríki fullgilt Barnasáttmálann. Aðeins tvö ríki heims hafa ekki enn gengið svo langt, Bandaríkin og Sómalía, þó fulltrúar beggja ríkja hafi skrifað undir sáttmálann. Þetta þýðir að í dag eru 2,2 milljarðar barna sem njóta verndar og viðurkenningar á réttindum sínum.

Nánar um málþingið
Á málþinginu mun Þórhildur Líndal, lögfræðingur og mannréttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar, fjalla um Barnasáttmálann og úrlausnir Mannréttindadómstóls Evrópu og dóma hæstaréttar Íslands. Að lokum mun hún svara spurningunni hvort Íslendingar hafi tekið Barnasáttmálann nógu alvarlega. Lucy Smith flytur erindi um Barnasáttmálann í alþjóðlegu samhengi og hvernig málefnum barna er háttað á Íslandi samanborið við önnur lönd.

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi mun sýna eigið vídeó þar sem sýn barna og ungmenna á réttindi er tekin fyrir. Auk þess flytur Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, erindi um notkun barnasáttmálans í starfi. Þá munu Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður, Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Helena Hyldahl Björnsdóttir, formaður ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, Þórhildur Líndal og Lucy Smith taka þátt í pallborðsumræðum. Jóhanna Vilhjálmsdóttir, dagskrárgerðarmaður, stýrir málþinginu.

Dagskrá málþings
14:00 – Setning málþings. Einar Benediktsson, stjórnarformaður UNICEF á Íslandi.
14:10 - Þórhildur Líndal, lögfræðingur og mannréttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar: Barnasáttmálinn 18 ára – tökum við Íslendingar hann alvarlega?
14:40 - Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, flytur erindi um notkun Barnasáttmálans í starfi umboðsmanns.
14:50 - Barnakór Kársness flytur nokkur lög
15:00 - Hlé og veitingar
15:20 - Ungmennaráð UNICEF á Íslandi sýnir eigið myndband þar sem sýn barna á réttindi er tekin fyrir.
15:30 - Lucy Smith frá alþjóðlegu barnaréttarnefndinni: Implementation of the Convention on the Right of the child - Iceland in a global context.
16:00 - Pallborðsumræður með Lucy Smith, Þórhildi Líndal, Petrínu Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Barnaheilla, Ágústi Ólafi Ágústssyni, þingmanni, og Helenu Hyldahl Björnsdóttur, formanni ungmennaráðs UNICEF Íslands.
16:30 – Þingslit
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, dagskrárgerðarmaður, stýrir málþingi.

Rit um Barnasáttmálann
Í ritinu Barnasáttmálinn: Rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi er hver grein sáttmálans tekin fyrir og ýmis ákvæði hennar skýrð nánar. Þetta þarfa rit er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og gagnast bæði leikum og lærðum. Það er nauðsynlegt öllum þeim sem vinna að málefnum barna með einum eða öðrum hætti.

Þess má geta að félagsmálaráðuneytið hefur fest kaup á ritinu fyrir allar barnaverndarnefndir á landinu.

Hægt er að panta ritið með því að senda póst á unicef@unicef.is eða hringja í síma 562 6262.