Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Bestu bolir í heimi

Í dag hefst sala á bolum til styrktar UNICEF sem bera nafnið „bestu bolir í heimi“. Hönnun bolanna var í höndum Kronkron og vísar hún í að öll getum við risið upp gegn því misrétti sem mörg börn eru beitt. Nýstofnað ungmennaráð UNICEF og íslenskir hönnuðir taka höndum saman og gera þessa boli sem geta breytt lífi barna. Bolirnir fást í Kronkron, Dogma, Spuutnik Kringlunni og Nakta apanum. Þeir fást í þremur litum, öllum stærðum og kosta 2500 krónur.

Með bolunum vill ungmennaráð UNICEF vekja athygli á því að 30 þúsund börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Með því að ganga í bolunum sýnum við samstöðu í baráttunni fyrir réttindum barna og bættum lífsskilyrðum þeirra. Bolirnir eru skreyttir loftbelgjum, en einn loftbelgurinn er ókláraður og vísar þannig í það verk sem eftir er að vinna, þ.e. að framlag hvers og eins skiptir miklu máli.

Þessir bolir munu bjarga lífi barna og eru þess vegna ekki bara góðir bolir, heldur „bestu bolir í heimi“!

UNICEF Ísland fékk helstu 'trendsettera' bæjarins til að taka þátt í kynningu á bolunum. Allir voru meira en til í að taka þátt og styrkja góðan málstað... auk þess að fá að spranga um í flottasta bol bæjarins!!