126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Humanitarian Action Report 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða (635 milljónir usd) til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Þetta eru annars vegar vel þekkt svæði eins og Darfur og hins vegar lönd á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið, sem ekki er fjallað mikið um í fjölmiðlum. Sjá skýrsluna á www.unicef.org/har07.
Náttúruhamfarir og átök taka sinn toll af lífi barna og kvenna víða um heim og í mörgum tilvikum vantar sárlega fjármagn til að sinna brýnni neyðaraðstoð. Gert er ráð fyrir að rúmlega fimmtungur af umbeðnu fé til neyðaraðstoðar verði varið til verkefna í Súdan, þar á meðal til Darfur héraðs. Ótryggt ástand og átök ógna lífi um 4 milljóna manna, þar af 1,8 milljónum barna. Helmingur af þeim 2 milljónum sem hafa þurft að flýja heimili sín í Súdan eru börn. Um 64% verður varið til neyðarðastoðar í Afríku.
Falin neyð
Skýrslan vekur athygli á svokallaðri falinni neyð barna. Í Kólumbíu eru börn þvinguð af heimili sínu með ofbeldi eða þau látin berjast. Há tíðni HIV/alnæmis og viðvarandi fátækt veldur því að börn í Sambíu búa við fátæklegustu aðstæður í heimi. Fleiri börn í Chad flýja nú til nágrannaríkja í leit að betra lífi. Ofbeldi og átök á Haítí veldur því að dánartíðni barna þar er ein sú hæsta í Rómönsku Ameríku.
„Mörg neyðartilfellanna þar sem UNICEF starfar eru gleymd og grafin vegna þess að þau eru ekki lengur talin neyð samkvæmt skilningi almennings,“ sagði Dan Toole, yfirmaður neyðaraðstoðar UNICEF, þegar skýrslan var kynnt í New York í dag. „Neyðinni er ekki lokið þó svo umfjöllun fjölmiðla sé lokið, hvort sem það er í Darfur eða á Haítí. Eins lengi og börn búa við neyðarástand, þá mun UNICEF hjálpa.“
Fjármögnun neyðaraðstoðar 2006
Á árinu 2006 aflaði UNICEF 513 milljónum dala (tölur frá 1. nóv.) til neyðaraðstoðar á 53 svæðum. Skyndileg og óvænt neyð nær að fanga athygli almennings fremur en sú neyð sem er viðvarandi og greint er frá í skýrslunni. Því fengu svæði sem búa við viðvarandi falið neyðarástand aðeins 37% fjármagnsins. Allt í allt gat UNICEF fjármagnað 49% af því sem samtökin þurftu til neyðaraðstoðar á árinu 2006.
Neyðarástand í flestum heimsálfum
Humanitarian Action Report 2007 gefur innsýn inn í neyðarástand víða um heim og hvernig UNICEF bregst við þeim. Í skýrslunni eru greint frá þörfum barna og kvenna á neyðarsvæðum og hvað það kostar að mæta þeim. Svæði sem þurfa nauðsynlega á neyðaraðstoð að halda eru m.a.:
Súdan – Auk þeirra áskorana sem nefndar eru hér að ofan þarf að taka á áhrifum langvarandi átaka í suðurhluta landsins. Í kjölfar friðarsamninga sem voru undirritaðir árið 2005 hafa 240 þúsund flóttamenn snúið aftur til síns heima og það eykur álagið í mjög viðkvæmum samfélögum.
Austur-Afríka (e. Horn of Africa) – Miklir erfiðleikar hafa steðjað að íbúum austurhluta Afríku eftir þurrka, flóð og átök. Flestir íbúanna eru hirðingjar og hafa flóð og mestu þurrkar í manna minnum haft mikil áhrif á afkomu þeirra síðastliðið ár. Enn fremur jók á erfiðleikana þegar átök brutust út í Sómalíu milli bráðabirgðarstjórnar landsins, sem studd er af Eþíópíu, og Samtökum Íslamista.
Austur-Evrópa og Samveldi sjálfstæðra ríkja – Innan þessa svæðis eru lönd þar sem börn búa við ótryggt ástand vegna lélegs félags- og efnahagslegs kerfis og veikburða yfirvalda.
Suður-Asía – Í Suður-Asíu búa flest fátæk börn í heiminum, þar er hæsta hlutfall vannærðra barna og hæsta dánartíðni barna.
Austur-Asía og Kyrrahafið – Flóðbylgjan árið 2004 tók sinn toll af samfélögunum og á árinu 2006 hafa íbúar þurft að glíma við aukna tíðni og stærðargráðu hamfara, þar á meðal jarðskjálfta, eldgos, hvirfilvinda og flóð. Þar að auki hafa vopnuð átök valdið tjóni, dauða og flótta fólks á svæðinu.
Miðausturlönd og Norður-Afríka – Stríðið í Írak hefur valdið erfiðleikum sem enn sér ekki fyrir endan á. Árásirnar á Líbanon olli gríðarlegu tjóni og ofbeldið í herteknu svæðum Palestínu heldur áfram að hafa áhrif á líf barna og ungmenna þar.
Neyðaraðstoð felst í að veita fólki neyðargögn og grundvallarþjónustu, s.s. aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, heilsgæslu, mat og vernd. UNICEF stendur einnig að þjálfun á sviði menntunar, næringar, hreinlætis og verndunar barna. UNICEF bólusetur tugi milljóna barna gegn mislingum og öðrum sjúkdómum, fær börn frelsuð úr ánauð hermennsku, aðstoðar vannærð börn, setur upp skóla í flóttamannabúðum, auk annarra mikilvægra verkefna.
Skýrslan fjallar um neyðarástand í eftirfarandi löndum:
Norður-Kákasus (tétsnía), átakasvæði Georgíu (Abkhazia og Suður Ossetía), Afganistan, Nepal, Srí Lanka, Búrúndí, Eritrea, Eþíópía, Kenía, Lesotho, Malaví, Mósambík, Sómalía, Svasíland, Úganda, Sambía, Zimbabve, Líbanon, hernumin svæði Palestínu, Súdan, Sýrland, Kólumbía, Haítí, Tímor Leste, Norður-Kórea, Mið-Afríkulýðveldið, Chad, Vestur-Kongó (Brazzaville), Austur-Kongó (Kinshasa), Fílabeinsströndin, Gínea, Líbería, Níger.