Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

UNICEF og Mia Farrow vekja athygli á neyðarástandi barna í Miðafríkulýðveldinu

Velgjörðarsendiherra UNICEF, Mia Farrow, lauk ferð sinni um Miðafríkulýðveldið með því að kalla eftir brýnni neyðaraðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á því neyðarástandi sem nú ríkir í landinu.

Farrow fór um sveitahéruð landsins og sá m.a. tóm, niðurnýdd og brunninn þorp þar sem fólk hafði flúið inn í skógana frá árásum vopnaðra sveita og stigamanna sem fara um landið. Farrow varð vitni að því hve flóttafólk er heilsufarslega illa á sig komið en áætlað er að þau telji nú um 212 þúsund.

„Þau hafa engin föt, ekkert skjól, engan matt, engin teppi, ekki aðgang að hreinu vatni og ekki síst hafa þau orðið fyrir sálrænu áfalli þar sem þau búa við stöðugan ótta um fleiri árásir,“ sagði Mia Farrow. „Að neita því að um neyðarástand sé að ræða mun leiða til dauða enn fleiri barna innan nokkurra mánaða,“ sagði Esther Guluma sem er yfirmaður Vestur- og Mið-Afríkusvæðisins hjá UNICEF. 

„Fólkið þarf heilsugæslu, vatnsdælur, eldunaráhöld, fræ og áhöld til að bjarga uppskerunni og hjálp til að koma börnunum aftur í skóla. Ef við ætlum að koma í veg fyrir þjáningar og dauðsföll verðum við að hraða áætlunum okkar, ásamt ríkisstjórn landsins, samstarfsaðilum okkar innan Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka á svæðinu,“ sagði Guluma.

Guluma bætir við: „Við verðum að bregðast við núna þar sem þegar hafa þúsundir flóttamanna flúið til landamæranna við Tsjad í norðvestri. Hættan er sú að þetta ástand sem nú hefur skapast muni verða til þess að gera aðstæðurnar enn verri á öllu svæðinu, sem er mjög viðkvæmt fyrir.“ Farrow bætir við að fyrst og fremst þurfi fólkið vernd, „þau sögðu mér að stærsta ósk þeirra væri að fá frið til þess að geta komið undir sig fótunum á ný.“ 

Þegar hafa verið gerðar áætlanir um að bregðast við neyðarástandinu í Miðafríkulýðveldinu. Neyðargögn eru í þessu að berast til flugvallarins í Bangui en þar má m.a. nefna 1000 tjöld, könnur og ábreiður. Þessu verður strax komið til fólks í Birao í norðausturhluta landsins sem liggur að Súdan.

Mia Farrow heimsótti Miðafríkulýðveldið 10.-16. febrúar og heimsótti verkefni UNICEF í Bangui, höfuðborginni og til afskekktra svæða í norðurhluta landsins. Tilgangur ferðar hennar var að vekja athygli á neyðarástandinu í landinu og þörf fyrir brýnni neyðaraðstoð. Hún hélt því næst til nágrannalandsins Tsjad.

Um ein milljón manns hafa orðið fyrir áhrifum af átökunum í Miðafríkulýðveldinu, sem er sjötta fátækasta ríki í heimi. Tíðni ungbarnadauða og mæðra við fæðingu var þegar mjög há en nú er allar líkur á að hún fari hækkandi.