í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:
Um það leiti sem íbúar Haítí voru að snúa aftur til sins heima eftir flóð sem skall á fyrir mánuði síðan, kom enn eitt flóðið sem fylgdi í kjölfar stormsins Noel. Síðan í lok september hafa flóð og miklar rigningar gert það að verkum að flestar íbúðir eru á floti. Gert er ráð fyrir að það eigi eftir að rigna meira og vindar haldi áfram sem eykur hættuna á flóði og aurskriðum. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.
7500 manns þurftu að flýja heimili sitt og 24 hafa látist vegna Noel, en það þýðir að fórnarlömb flóða síðastliðinn mánuð eru alls 63.
Haítí er fátækasta landið í hinu vestlæga jarðarhveli. Yfir helmingur íbúa er undir fátækramörkum (lifir á undir dollara á dag) og 76% lifir undir 2 dollurum á dag. 45% þjóðarinnar eru undir 18 ára aldri og því er mikilvægt að huga að þörfum þessa stóra hóps á tímum neyðaraðstoðar.
Neyðaraðstoð UNICEF
UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð í samstarfi við önnur hjálparsamtök á svæðinu. UNICEF er að meta þarfir íbúa og barna sérstaklega með tilliti til heilsugæsluverkefna, vatns og næringar. UNICEF hefur áhyggjur af því að skólar séu notaðir sem skjól og það truflar skólastarf, jafnvel þar sem er ekki neyðarástand. UNICEF hefur því sett upp tjöld sem veita tímabundið skjól sem skólastofur eða fyrir fjölskyldur.
Sálræn hjálp er veitt samhliða verkefnum á sviði menntunar og veitir UNICEF skólagögn og önnur nauðsynleg gögn í staðinn fyrir þau sem hafa eyðilagst í flóðunum. Sérfræðiteymi verður sent á vettvang til að hjálpa börnum að komast yfir áfallið og stressið sem fylgir slíkum hamförum.
UNICEF hefur sent hundruð neyðargagna á svæðið. Meðal þess sem UNICEF hefur sent til barna og fjölskyldna á Haítí eru hreinlætispakkar, eldunaráhöld, teppi, vatnstanka, tjöld, segldúkar, vatnshreinsitöflur, o.fl.