hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Monsúnrigningar í Suður-Asíu hafa verið þær mestu í manna minnum. Talið er að tæplega 3000 manns hafi týnt lífi og yfir 50 milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Ljóst er að þörfin er mikil og lýsti UNICEF áhyggjum sínum yfir því að hungur, sjúkdómar og vannæring gæti herjar á milljónir kvenna og barna á meðan á flóðunum stendur. Rigningar hafa auk þess skemmt vegi og samgöngur sem gerir hjálparstarf enn erfiðara. UNICEF hefur þó náð að veita víðtæka neyðarðastöð á flóðasvæðunum.
Hjálparstarf er komið vel af stað í öllum þeim löndum sem orðið hafa illa úti í monsúnrigningunni í ár. Samt sem áður hefur niðurgangur og sjúkdómar sem berast með óhreinu vatni aukist að undanförnu. Aðgangur að drykkjarhæfu vatni, fæðu og skjóli er enn aðaláherslan í hjálparstarfinu. UNICEF vakti einnig athygli á því að vegna aðstæðnanna geta milljónir barna nú ekki hafið nám á nýju skólaári. Skólar hafa eyðilagst eða eru notaðir sem skjól fyrir þær milljónir fjölskyldna sem misst hafa heimili sín.
Indland
Indland hefur orðið hvað verst úti í flóðunum. Talið er að 1835 Indverkjar hafi týnt lífi og 38 milljónir eru bein fórnarlömb flóðanna. tæp 1,5 milljón heimila hafa eyðilagst. Aðstæður eru sérstaklega slæmar á fjórum svæðum; Bihar, Uttar Pradesh, Assam og Orissa. Þar eru a.m.k. 3 milljónir barna sem þurfa á hjálp að halda.
Alistair Grétarsson, sem er upplýsingafulltrúi UNICEF á Indlandi, sagði í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í ágúst að þó heilmikið hafi þegar áunnist í hjálparstarfinu sé enn mikið eftir óunnið. Landsvæðið sem hafi farið undir vatn sé gríðarstórt, mörg þorpanna séu afskekkt og því erfitt að komast að þeim. ,,Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir er að á mjög stóru landsvæði liggur kyrrstætt vatn og í þessu vatni breiðast út sjúkdómar. Við glímum einnig við að vatn hefur flætt ofan í alla brunna. Þegar fólk hefur ekki hreint drykkjarvatn fer það að drekka flóðavatnið og þá er mikil hætta á að faraldur breiðist út," sagði Alistair og bætir við að börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir sjúkdómum á borð við malaríu, denge-hita og niðurgangi á flóðatímum. Hætta er á að vatnið verði gróðrastía sjúkdóma og moskítóflugna.
Þó svo að flóðin séu í rénum almennt hefur dregið síðast úr rigningum í norðurhluta Indlands. Monsúnrigningartímabilið, sem staðið hefur frá júní, lýkur ekki fyrr en í lok september og því aldrei að vita hvernig málin þróast. Þorp einangruðust í flóðinu og vegir skemmdust eða hurfu alveg.
UNICEF hefur sent hjálpargögn til 30 þúsund barna og kvenna. Þessi hjálpargögn eru m.a. plastdúkar, flugnanet, vatnshreinsitöflur, saltupplausnir, lyf, sápur, vatnsdúnkar, kerti, eldspýtur og járn-og fólínsýrutöflur fyrir þungaðar konur. Lækna- og hjúkrunarteymi á vegum UNICEF hefur veitt þúsundum, ef ekki milljónum, læknishjálp. Mikil áhersla er einnig lögð á hreinlæti og næringu til ungabarna. Bólusetningarátak gegn mislingum er einnig hafið.
Bangladesh
Flóðin eru í rénum í Bangladess, en Ganges og Brahmaputra gætu auðveldlega flætt yfir bakka sína aftur. Tæp 500 manns hafa týnt lífi, yfir 51 þúsund hafa greinst með niðurgang og 10 þúsund hafa greinst með öndunarfærasýkingar. Talið er að 10 milljónir manna séu í hættu vegna skorts á drykkjarhæfu vatni og salernisaðstöðu. UNICEF í Bangladess hefur áhyggjur af vannæringu barna í landinu í kjölfar flóðanna.
Um 6751 grunnskólar eru lokaðir og aðrir 454 skólar eru notaðir sem skýli. Vinna er þegar hafin við að endurbyggja þá skóla sem skemmdust.
UNICEF hefur veitt lyf, saltupplausn, næringarkex, plastdúka, hreinlætis-og fræðslupakka og tæpar 16 milljónir vatnshreinsitaflna.
Nepal
Dauðsföll í Nepal hækka enn vegna flóða og landskriðs um land allt. Snjóflóð urðu í Himalajafjöllum sem kom af stað skyndilegu flóði í Mustang héraði. Fjölskyldur misstu heimili sín og uppskera brást. Yfir 100 manns hafa látið lífið og 64 slasast. Hundruðir fjölskyldna, sem misst höfðu heimili sín og voru á leiðinni heim, þurftu að flýja flóðin í annað sinn á þremur vikum í ágúst.
Allt í allt hafa nærri hálf milljón manna í Nepal orðið fórnarlömb flóðanna, þar af eru um 20 þúsund fjölskyldur sem hafa í engin hús að vernda. Nálægt 56 þúsund heimili eyðilögðust.
Hjálparstarf hefur truflast vegna pólitísks óstöðugleika og ofbeldis í Terai héraði, en þar hafa bílar með hjálpargögnum hreinlega verið stöðvaðir þrátt fyrir mikla neyð. Skjól, drykkjarhæft vatn og útbreiðsla matar eru enn lykilatriði í hjálparstarfinu. UNICEF hefur dreift flugnanetum í vesturhluta landsins, 15 þúsund hreinlætispökkum (sápa, vatnshreinsitöflur, o.fl.), vatnsdúnkum og könnum. Innslög með hreinlætisfræðslu hafa verið gerð og er útvarpað um land allt.
Pakistan
Flóð hafa herjað á hluta Pakistans eða nánar tiltekið á svæðunum Sindh og Balochistan. Fyrr um sumarið skall fellibylurinn Yemyin á og miklar rigningar fylgdu í kjölfarið. Tæp 400 manns hafa látist og 370 þúsund manns eru heimilislaus. Talið er að fórnarlömbin séu um 2,5 milljónir. UNICEF vinnur að því að veita fólki hreint drykkjarvatn og nauðsynleg sjúkragögn. UNICEF mun einnig styðja við menntakerfið og aðstoða þau börn sem hafa orðið verst úti.