Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Göngunni á Ama Dablam lokið

Ingvar komst á topp Ama Dablam föstudaginn 19. október ásamt Simoni Yates. Viðar þurfti því miður að snúa við í búðum eitt þar sem hann átti erfitt með hæðaraðlögun. Þeir félagar áttu góða daga í Katmandú áður en þeir héldu af stað að skoða verkefni UNICEF í Chitwan síðastliðinn sunnudag. Þeir munu heimsækja skóla og hitta börn sem hafa verið þvinguð til þátttöku í átökum stríðandi fylkinga í landinu. Einnig fylgja þeir eftir heilsugæslustarfsmanni sem fer á milli húsa og veitir hjálp til barna sem stríða við öndunarfærasjúkdóma. Ingvar og Simon fóru úr búðum eitt á fimmtudaginn kl. 8.00. Sherparnir sem fylgdu þeim misstu félaga sinn í fyrra þegar snjóflóð féll á búðir þrjú svo þeir vildu alls ekki vera þar.

Þeir félagar fundu syllu rétt neðan við búðir þrjú og komu þeir fyrir tveimur tjöldum og gistu þar. Staðinn kalla þeir sveppahrygginn. Á föstudagsmorgni þegar þeir komu við í búðum þrjú voru allir sem þar höfðu verið að halda niður. Fjögur snjóflóð höfðu fallið um nóttina í nágrenni búðanna og fyrirtæki sem höfðu skipulagt ferðir og áttu mannskap í búðunum skipuðu mönnum að snúa við.

Ingvar og félagar sem höfðust við á sveppahryggnum urðu ekki varir við snjóflóðin og breyttu því ekki ferðaplönum sínum. Þeir héldu áfram og komust á toppinn kl. 11.30 á föstudaginn, 19. október!!

Ekki sást ský á himni á toppnum og útsýnið var ólýsanlegt. Mikilfenglegir fjallatoppar blöstu við og fylltu menn lotningu og stolti. Ingvar sagði þetta erfiðustu tvo daga sem hann hafði lifað. Nánar má lesa um þrekvirkið á http://amadablam.blog.is.

Nú er bara að bíða heimildamyndarinnar! 

Um fjallagarpana
Viðar Helgason er 42 ára smiður sem rekur sitt eigið fyrirtæki. Hann hefur verið í fjallamennsku í 25 ár. Hann byrjaði fjallamennskuferillinn í björgunarsveitum, er í stjórn Íslenska alpaklúbbsins og í hlutastarfi sem leiðsögumaður hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. 

Ingvar Á. Þórisson, 46 ára leikstjóri og myndatökumaður, hefur starfað í kvikmyndagerð í 16 ár á RÚV og á Skjá Einum, en rekur eigið fyrirtæki í dag. Hann var myndatökumaður í 7 tinda leiðangri Haraldar Arnar Ólafssonar á hæsta fjall Evrópu, Elbrus. Ingvar var einnig kvikmyndatökumaður og meðframleiðandi á Trapped In The Land Of Fire and Ice. Myndin var sýnd á National Geographic í Evrópu, Suður Ameríku, á Adventure One (A1) og ferðarásum víða um heim. Ingvar hefur einnig gengið á Mt. Blanc og verið í fjallamensku frá unglingsárunum. Hann starfar í hlutastarfi sem leiðsögumaður hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum.

Simon Yates er einn af þekktustu fjallamönnum heims. Simon (oft kallaður maðurinn með hnífinn) kom til Íslands fyrir nokkrum árum með fyrirlestur og kynntust þeir Viðar og Ingvar honum þá. Við þetta tækifæri klifraði Simon meðal annars á Skarðsheiðina og er því sannkallaður íslandsvinur!
Simon og klifurfélagi hans Joe Simpson öðluðust heimsfrægð þegar þeir klifu Siula Grande í Perú árið 1985. Joe Simpson skrifaði bókina Touching the Void um það fjalladrama. Samnefnd heimildarmynd var gerð árið 2003 og fékk hún Bafta verðlaunin sem besta kvikmyndin árið 2004.

Styrktaraðilar
Fjölmargir styrktaraðilar hafa lagt þeim félögum lið og gert leiðangurinn mögulegan. Um leið leggja þessir aðilar sitt af mörkum til að vekja athygli á heimsforeldraátaki UNICEF. Styrktaraðilarnir eru:
Viðar&Óskar, Blikksmiðjan Vík, Dynjandi, Granítsmiðjan, Boot Camp, Visa, Fylgifiskar, Remax fasteignir, Himnesk hollusta, Berserkir ehf, Fjallakofinn, Pentax-ljósmyndavörur, Íslenska gámafélagið, Vörður, Áltak, Norvík og Toyota á Selfossi.