Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

UNICEF kallar eftir auknum fjárframlögum til hjálpar börnum í Írak

Í yfirlýsingu sem UNICEF sendi frá sér í gær kalla samtökin eftir 42 milljónum bandaríkjadala til að standa undir nauðsynlegu hjálparstarfi í þágu írakskra barna á næstu sex mánuðum. Um að ræða aðstoð við börn sem staðsett eru í Írak og eins börn sem hafa flúið með fjölskyldum sínum til Jórdaníu og Sýrlands.

„Við höfum sett niður áætlun um hvernig megi ná til berskjölduðustu barnanna,“ sagði Daniel Toole, yfirmaður neyðaraðstoðar hjá UNICEF. „Við munum sérstaklega horfa til barna sem eru á flótta og barna á þeim landsvæðum sem eru hvað mest mörkuð ofbeldi,“ hélt Toole áfram og upplýsti að aðaláherslan yrði lögð á að tryggja börnum grunnheilsugæslu, aðgang að hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun.

Hætta á kólerufaraldri
Talið er að næstum 15% íröksku þjóðarinnar hafi flúið heimili sín frá árinu 2003. Það gerir um fjórar milljónir manna. Helmingurinn er börn. Í síðustu viku var tilkynnt um fyrstu kólerutilfelli ársins (allt börn) og hafa sérfræðingar lýst áhyggjum sínum af því að faraldur kunni að brjótast út. Það er enda áætlað að einungis 30% barna hafi aðgang að hreinu vatni og erfitt reynist að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Toole sagði að sökum þess hve ótryggt ástandið væri í Írak væri hreinlega ógerlegt að ná til fjölmargra barna á tilteknum svæðum. En hann ítrekaði að það væri vel hægt að hjálpa gríðarlegum fjölda barna - sem þyrfti þess svo sannarlega við. Því til sönnunar nefndi hann að í nýlegri bólusetningarherferð gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum sem UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) stóðu fyrir, m.a. með stuðningi frá Evrópusambandinu, hefði náðst til 3,6 milljóna írakskra barna.

„Alþjóðlegur stuðningur við hjálparstarf í þágu írakskra barna verður að halda áfram,“ sagði Toole að lokum.