þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003. UNICEF varar við því að stór fjöldi íraskra barna muni nú vaxa upp ómenntaður og félagslega einangraður.
Áætlun Barnahjálparinnar og Flóttamannahjálparinnar gengur út á að veita 155 þúsund íröskum flóttabörnum menntun á skólaárinu 2007-8 í löndum eins og Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi og Líbanon. Allt í allt eru yfir 2 milljónir Íraka á flótta frá landi sínu vegna ofbeldisins sem þar geisar. Flestir flóttamenn hafa farið til Sýrlands og Jórdaníu. Af þessum 2 milljónum eru 500 þúsund börn og ungmenni á skólaaldri sem hafa engan eða litlan aðgang að námi.
Stjórnvöld í Jórdaníu gáfu út yfirlýsingu í gær, fimmtudag, um að þau myndu gefa öllum íröskum flóttabörnum pláss í jórdönskum skólum.
,,Við erum Jórdönum mjög þakklát fyrir þessa ákvörðun sína," sagði Judy Cheng-Hopkins, yfirmaður hjá Flóttamannahjálpinni. ,,Þessi nágrannalönd hafa borið miklar byrðar við að huga að milljónum íraskra flóttamanna. Fjöldi flóttamannanna er slíkur að innri strúktúr samfélaganna liðast undan, sér í lagi á sviði menntunar. Við biðjum því nú um alþjóðlegan stuðning til að koma þessum nágrannalöndum Íraks til hjálpar svo að þau geti komið íröskum börnum aftur í skóla."
Pierrette Vu Thi, aðstoðarframkvæmdastjóri neyðaraðgerða UNICEF, sagði: ,,Hjá UNICEF er menntun lykilatriði í neyðaraðgerðum því nám getur gefið börnum aftur tilfinningu fyrir hinu daglega lífi og getur hjálpað börnum að komast yfir sálræn áföll og kvíða. Stjórnvöld í Jórdaníu og Sýrlandi hafa unnið undravert starf við að taka á móti íröskum flóttamönnum. Írösk börn hafa þó beðið lengi. Við verðum að tryggja það að þau verði tilbúin til að sækja skóla þegar hann byrjar í haust."
Sýrland hefur þegar veitt Írökum fullt leyfi að skólum sínum. Tölur sína þó að af 300 þúsund Írökum í Sýrlandi, eru aðeins 33 þúsund börn í skóla. Það er því ljóst að meiri aðstoðar er þörf. Í Jórdaníu áætla stjórnvöld að 19 þúsund írösk börn séu í skóla á meðan 50 þúsnd börn fara á mis við menntun. Fjármagnið sem UNICEF og Flóttamannahjálpin biðja nú um á að ná frá hausti 2007 til loka árs 2008. Það mun geta gert 100 þúsund íröskum börnum í Sýrlandi kleift að sækja skóla, 50 þúsund í Jórdaníu, 2000 í Egyptalandi, 1500 í Líbanon og 1500 í öðrum löndum á svæðinu.
Gerðar verða ráðstafanir þannig að skólarnir verði í stakk búnir að sinna þörfum flóttabarnanna, þ.e. kennarar og félagsráðgjafar fá þjálfun til að geta hjálpað börnunum að takast á við þau sálrænu áföll sem mörg þeirra hafa upplifað. Þau börn sem hafa misst mikið úr námi fá einnig sérstaka hjálp.