Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

UNICEF stendur fyrir opnum fundi með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne

Mánudaginn 24. september stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi í Iðnó með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne. Þar mun Ishmael lesa upp úr bók sinni Um langan veg: frásögn herdrengs og fjalla um reynslu sína af borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne. Fundurinn stendur frá 12:10 til 13:10 og er ókeypis inn.

Þrettán ára gamall var Ishmael tekinn í her síerraleónskra stjórnvalda og afhent byssa til að berjast gegn uppreisnarmönnum. Fyrr en varði var þessi ungi og ósköp venjulegi strákur farinn að drepa fleiri menn en hann gat hent reiður á, uppdópaður og egndur til ódæðisverka.

Borgarastyrjöldin í Síerra Leóne, sem stóð frá 1991 til 2002, er talin vera ein af blóðugustu borgarastyrjöldum sögunnar og þar voru börn notuð miskunnarlaust í stríði andstæðra fylkinga. Þegar Ishmael var 16 ára gamall bjargaði UNICEF honum úr klóm hermennskunnar. Hann fékk hjálp til að aðlagast samfélaginu á ný og nú á 27. aldursári hefur hann skapað sér nýtt líf í Bandaríkjunum.

Hluti af ágóða rennur til UNICEF
Að fundi loknum mun Ishmael árita bók sína, Um langan veg: frásögn herdrengs, sem vakið hefur mikla athygli um allan heim og kom út í íslenskri þýðingu á vegum JPV í byrjun vikunnar. 10% af söluágóða bókarinnar á Íslandi mun renna til UNICEF.

Einstakt tækifæri
Vegna þess hversu stutt Ishmael stoppar á landinu verður fundurinn í Iðnó eina tækifæri almennings til að heyra sögu þessa merka unga manns frá fyrstu hendi; hvernig er að vera barn í stríði og upplifa atburði sem ekkert barn á nokkurn tímann að koma nálægt og ekki síst hvernig hægt er að snúa aftur til eðlilegs lífs. 

Börn eru þvinguð til þátttöku í stríði
Ishmael hefur víða sagt frá þessari erfiðu reynslu sinni og þannig lagt sitt af mörkum til að opna augu almennings fyrir þeirri hræðilegu staðreynd að um 300 þúsund börn séu látin berjast í þeim rúmlega 50 styrjöldum sem geisa í heiminum í dag. Hann vill leggja sitt af mörkum til að þessi börn fái frelsi og hjálp til að byggja upp líf sitt að nýju.

„Enginn fæðist ofbeldisfullur. Ekkert barn í Afríku, Rómönsku Ameríku eða Asíu vill vera hluti af stríði. Börn eru þvinguð til þátttöku í stríðum,“ úskýrði Ishmael Beah á fundi í París á dögunum. „Börnin verða fyrir sálrænum áföllum og eru stöðugt gefin eiturlyf. Yfir langan tíma verður ofbeldið vanalegt – eini raunveruleikinn sem þau þekkja.“

„Það er auðvelt að verða barnahermaður, en það er mun erfiðara að endurheimta mennsku sína á ný,“ sagði Ishmael. „En það er mögulegt.“

Sjá nánar á: www.alongwaygone.com og www.jpv.is.