UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Í lok árs 2006 sváfu 40% íbúa í hinu litla Vestur-Afríkuríki Gíneu-Bissá undir flugnaneti með skordýraeitri (e. insecticide-treated nets). Um er að ræða gríðarlega aukningu frá árinu 2000 þegar notkunin var einungis 2-7%.
Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu UNICEF og samtaka sem berjast gegn útbreiðslu malaríu. Í skýrslunni, sem nefnist Malaria and children: Progress in inervention coverage, kemur einnig fram að flugnanet eru ein áhrifamesta forvörnin gegn malaríu og geta dregið úr dánartíðni barna um allt að 20% á svæðum þar sem malaría telst vera faraldur – eins og Gíneu-Bissá.
Þennan árangur má m.a. rekja til framlaga frá Íslandi. Árið 2005 héldu Baugur Group, FL Group og Fons fjáröflunarkvöldverð til styrktar UNICEF í Gíneu-Bissá og greiddu framlögin sem söfnuðust m.a. fyrir 80% verkefnis sem miðaði að því að dreifa flugnanetum til allra barna undir 5 ára aldri í Gíneu-Bissá. Dreifing netanna fór fram í lok árs 2006 og í byrjun árs 2007.