UNICEF bregst við jarðskjálftum á Súmötru
Fréttir herma að yfir 70 manns hafi látið lífið í hörðum jarðskjálfta (6.2) sem varð á vestanverðri Súmötru kl. 10:49 að staðartíma í morgun. Tveimur tímum síðar kom annar skjálfti, næstum eins harður (6.0), á sama svæði. Yfir 200 manns liggja særðir og spítalar eru yfirfullir af sjúklingum. Hundruðir bygginga hafa skemmst.
Jarðskjálftinn olli hræðslu við flóðbylgju meðal íbúa á strandsvæðunum. Fyrstu fregnir herma að rýma þurfti einn spítala og að a.m.k. tveir nemendur hefður látist þegar skólinn þeirra féll.
Þúsundir íbúa eru án rafmagns og símalínur hafa einnig skemmst. Vegurinn frá Padang til Solok hefur verið eyðilagður en það hamlar flutning á neyðargögnum. Verstu skjálftarnir urðu um 33 km frá Solok. Farsímar eru samt sem áður í lagi mjög víða.
UNICEF hefur sent tvo starfsmenn á svæðið og einn starfsmaður samhæfðra neyðaraðgerða er á leiðinni. Þeir munu aðstoða við neyðarhjálp á svæðinu ásamt Indónesíska Rauða krossinum og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna.
UNICEF er með neyðargögn á norðanverðri Súmötru (Medan) og munu þau verða send ef þess gerist þörf þegar búið er að meta ástandið.