Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Aðstoð berst fórnarlömbum jarðskjálftanna á Súmötru

Í gær lauk UNICEF að meta þarfir fórnarlamba jarðskjálftanna á vesturhluta Súmötru. Neyðin er stærst í nágrenni Solok þar sem hörðustu jarðskjálftarnir urðu og þegar hafa átta vörubílar farið með neyðargögn þangað frá birgðastöð UNICEF í Medan á norður Súmötru. 15 skólar og um 500 hús hafa orðið fyrir mikilli eyðileggingu. UNICEF mun veita öllum skólunum tvö tjöld og sendir yfir 20 vatnstanka og 500 hreinlætispakka til svæðisins. UNICEF sendir einnig 50 eldunaráhöld og 500 vatnsbrúsa.

Barnaverndarfulltrúi UNICEF, Assefa Dano, heldur til jarðskjálftasvæðanna til að aðstoða við og meta sálræn áhrif hamfaranna á yngstu börnin, þar á meðal þau sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar. Heilbrigðisfulltrúi og birgðafulltrúi eru einnig komnir á svæðið.

Samtök sem sjá um viðbrögð við hamförum í Indónesíu og indónesíski Rauði krossinn hafa sagt að dauðsföll vegna jarðskjálftanna séu nú 73. 161 hafa særst alvarlega og 33 eru með minniháttar áverka. Yfirvöld á svæðinu segja að um 7500 manns hafi misst heimili sín og 3500 byggingar hafa eyðilagst.

Stærstu jarðskjálftarnir á þriðjudaginn mældust 6.3 og 6.0 á Richter kvarða.