árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
UNICEF í Kambódíu starfar náið með afskekktum samfélögum á landsbyggðinni við að byggja leikskóla sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu. Aðeins 14% af börnum í Kambódíu á aldrinum 3 til 5 ára fara í leikskóla. Hlutfallið er minna úti á landsbyggðinni. UNICEF hefur aðstoðað um 900 leikskóla í sex landsbyggðarhéruðum við að gefa um 20 þúsund börnum tækifæri á ganga í leikskóla og njóta þeirrar náms- og félagsfærni sem leikskólar veita.