93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
Eftivæntingin var mikil fyrir utan Háskóla Íslands þegar loftfar íþróttaálfsins lenti þar um helgina. Hann var kominn til að hita upp fyrir Latabæjarmaraþonið með nokkrum börnum. Mikið fjör fylgdi upphituninni og fékk íþróttaálfurinn krakkana til að gera alls kyns kúnstnir eins og handahlaup og kollhnís sem endar í spíkati. Íþróttaálfurinn sýndi krökkunum hvernig ætti að hlaupa í Latabæjarhlaupinu sem verður fyrir utan Háskólann næstkomandi laugardag.