Vissir þú að...

UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.

Þú ert hér:  

Loftbelgjabolirnir uppseldir ... en önnur sending er komin til landsins!

Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum. Auk þess mun Iceland Airwaves vera í samstarfi við UNICEF um sölu bolanna og selja þá á stærsta tónleikastaðnum á hátíðinni, Listasafni Reykjavíkur.