Frá hugsjónum til framkvæmda - málþing um þróunarsamvinnu
Átta mannúðarsamtök hafa tekið höndum saman um að halda fyrsta málþing hér á landi um hlutverk félagasamtaka í þróunarsamvinnu föstudaginn 23. mars kl. 9-16 í Norræna húsinu. Samtökin sem koma að málþinginu eru ABC barnahjálp, Barnaheill, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, Kristniboðssambandið, SOS barnaþorp, UNICEF og UNIFEM á Íslandi.
Samtökin vilja bjóða þér að taka þátt í áhugaverðu málþingi þar sem megin markmiðið er að stuðla að faglegri umræðu um þróunarsamvinnu ásamt því að miðla reynslu og þekkingu.
Á málþinginu verður fjöldinn allur af áhugaverðum fyrirlestrum og erindum. M.a verður Brian Pratt framkvæmdastjóri INTRAC (International NGO Training and Research Centre í Oxford á Englandi) með erindi um hvernig samstarfi stjórnvalda og félagasamtaka í þróunarsamvinnu er háttað í öðrum Evrópulöndunum.
Frá hugsjónum til framkvæmda - málþing um hugsjónir, markmið og leiðir í þróunarsamvinnu frjálsra félagasamtaka
Staður: Norræna húsið
Tími: 23. mars 2007, kl. 9:00-16:00.
9:00 Málþingið sett. Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
9:15 Steinunn Hrafnsdóttir dósent við félagsvísindadeild (félagsráðgjafarskor) Háskóla Íslands.
Skilgreiningar á frjálsum félagasamtökum.
9:35 Sjöfn Vilhelmsdóttir framkvæmdastjóri UNIFEM á Íslandi.
Af hverju eru frjáls félagasamtök í þróunarsamvinnu?
9:55 Petrína Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Hugsjónir og hugmyndafræði.
10:15 Lydía Geirsdóttir verkefnisstjóri, Hjálparstarfi kirkjunnar.
Hvað er þróun og hvert á að þróast?
10:35 Kaffihlé - Fairtrade kaffi og meðlæti.
11:05 Brian Pratt framkvæmdastjóri INTRAC á Bretlandi.
Official Agency Funding of NGOs in Seven Countries: Mechanisms, Trends and Implications. What are the mechanisms by which the official agencies of seven major European countries use to distribute ODA to domestic NGOs? How are the details of historical developments of official aid funding of NGOs, overall trends and the implications of these funding mechanisms for NGOs and civil society? What does the influence of wider policy issues of official agencies, such as the emphasis on security and the aid harmonization agenda have?
12:05 Matarhlé
Spennandi réttir frá Norður-Afríku á góðu verði. Kynning á starfi mannúðarsamtakanna átta í anddyri Norræna hússins. Gott tækifæri til að ræða við fyrirlesara og málþingsgesti.
13:05 Guðrún Margrét Pálsdóttir formaður ABC barnahjálpar.
Að hefja starf á nýjum vettvangi og í nýju landi.
13:25 Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga.
Að vera á vettvangi.
13:45 Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Samstarf frjálsra félagasamtaka við einkageirann.
14:05 Helga Þórólfsdóttir sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands.
Okkar þarfir – þeirra þarfir: Hvernig mætumst við á miðri leið.
14:25 Gestur Hrólfsson verkefnisstjóri, Rauða krossi Íslands.
Framtíð félaga í þróunarsamvinnu
14:45 Kaffihlé - Fairtrade kaffi og meðlæti.
15:05 Pallborðsumræður
16:00 Málþingi slitið