Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Starfsmenn UNICEF Ísland safna áheitum

Allt starfsfólk UNICEF Ísland ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 18. ágúst næstkomandi. Fremstur í flokki fer framkvæmdastjórinn Stefán Ingi Stefánsson sem hyggst hlaupa heilt maraþon eða 42,2 km. Aðrir starfsmenn hlaupa allt frá 3 km upp í 21,1.

UNICEF Ísland hvetur almenning til að taka þátt í hlaupinu, heita á UNICEF og láta þannig gott af sér leiða. Einnig viljum við hvetja sem flesta til að að heita á starfsfólk UNICEF. Munu þeir fjármunir sem safnast renna óskiptir til verkefna UNICEF.

Hægt er að heita á hlauparana á www.marathon.is

Starfsmenn UNICEF Ísland eru: Stefán Ingi Stefánsson (42,2), Bergsteinn Jónsson (21,1), Flóki Guðmundsson (21,1), Hólmfríður Anna Baldursdóttir (3 km), Snjólaug Aðalgeirsdóttir (3 km), Dröfn Guðmundsdóttir (3 km) og Björk Bjarkadóttir (3 km).

Allir sigra!
Kjörorð Reykjavíkurmaraþons Glitnis 2007 er: Allir sigra! Í ár munu allir þátttakendur hafa möguleika á að hlaupa til góðs með því að safna áheitum sem munu renna til góðgerðafélaga.

Fólk ákveður sjálft vegalengdina og þau góðgerðafélög sem njóta góðs af þátttökunni. Ef um viðskiptavin er að ræða greiðir Glitnir 500 krónur til góðgerðamála fyrir hvern kílómetra.

Með áheitakerfinu hvetur fólk viðkomandi til dáða og lætur jafnframt gott af þér leiða.