Jarðskjálfti í Perú hefur alvarlegar andlegar afleiðingar á börn
Þúsundir barna og ungmenna hafa misst heimili sín í kjölfar jarðskjálftans í suðurhluta Perú fyrir viku síðan. Mörg barnanna hafa orðið fyrir miklu tilfinningalegu áfalli og þurfa skjóta aðhlynningu. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að veita sálræna aðstoð og stuðning til þessarra ungu fórnarlamba.
,,Mörg barnanna sýna merki um stress eftir jarðskjálftann sem birtist m.a. í því að þau vilja ekki vera innanhúss eða eiga erfitt með svefn," sagði Guido Cornale, yfirmaður UNICEF í Perú. ,,UNICEF starfar með öðrum samtökum Sameinuðu þjóðanna og stjórnvöldum í Perú til að mæta ekki bara grundvallarþörfum barna og fjölskyldna þeirra um mat og skjól, heldur er einnig veitt áfallahjálp."
UNICEF veitir sálræna aðstoð og stuðning með mismunandi hætti, eftir því hvað hentar hverju sinni. Ein leið er að skipuleggja hópfundi með börnum og fjölskyldum og nota leik með skipulögðum hætti til að komast yfir áfallið. Önnur leið er að efla þátttöku barna, fjölskyldna og allra í samfélaginu til að fá sálræna aðstoð þar sem notuð yrðu leikföng og leikmunir til að hjálpa ungu fólki að tjá tilfinningar sínar. UNICEF hefur þróað þessar aðferðir og notar þær víða í kjölfar náttúruhamfara og átaka af mannavöldum.
Afleiðingar jarðskjálftans
Jarðskjálftinn sem fór yfir suðurströnd og fjallahéruð Perú 15. ágúst síðastliðinn mældist 7,9 á Richter skala. Yfir 500 manns létust og þar á meðal 40 börn og ungmenni þar sem jarðskjálftinn var harðastur um 200 km suður af Lima, höfuðborg Perú.
Erfitt hefur reynst fyrir hjálparstarfsfólk að ná sambandi við fjallahéruðin og þar af leiðandi er erfitt að meta eyðileggingu og tölu látinna þar. Við suðurströndina er talið að 1000 manns hafi særst, 35 þúsund heimili eyðilögðust og enn fremur urðu spítalar, kirkjur, skólar og vegir að rústum.
Börn hafa sérstakar þarfir
Samkvæmt heilsugæslufulltrúa UNICEF á svæðinu, Mario Tavera, hafa börn og ungmenni sérstakar þarfir. ,,Börn þurfa reglu í líf sitt og þau þurfa að finna til öryggiskenndar. Hið daglega líf þeirra var eyðilagt svo um munar. Ég hef séð marga skóla í rústum svo það lítur ekki út fyrir að skólinn geti byrjað nú í september eins og ráðgert var. Börn þurfa skólagögn og sálræna aðstoð til að hjálpa þeim í gegnum þessa erfiðu tíma."