Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

UNICEF og WHO bregðast við sjúkdómsfaröldrum í Sómalíu

Þrátt fyrir mikið óöryggi í mið- og suðurhluta Sómalíu ætla Sameinuðu þjóðirnar að halda áfram að koma til móts við brýnar þarfir fólks á svæðinu, en þar hefur brotist út niðurgangsfaraldur sem rekja má til nýlegra flóða.

Þó að flóðið sé í rénun hafa vatnsbyrgðir mengast og eru vatnsból orðin gróðrastía sjúkdóma eins og niðurgangs og malaríu.

Christian Balslev-Olesen, yfirmaður UNICEF á svæðinu sagði að, „Hver svo sem staðan er í mið- og suðurhluta Sómalíu hefur UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) starfað þar í fleiri ár og veitt neyðargögn og þjónustu til þess að bæta líf barna og fjölskyldna. Á þessu andartaki vinnum við með samstarfsaðilum okkar og samfélögunum sjálfum við að prófa og hreinsa öll vatnsból og tryggjum að sjúkir fái þá læknisaðstoð sem þeir þurfa.“

Neyðargögn send
Það sem af er þessu ári hefur UNICEF og WHO veitt sjúkragögn, lyf og önnur tæki til að hjúkra börnum með niðurgang (100 slæm tilfelli og 400 miðlungsslæm) og tvo vatnstanka til sjúkrahúss í miðhluta Sómalíu. Sjúkragögnum hefur einnig verið dreift til að hjúkra fólki á Hiran svæðinu. Fræðsla um hreinlæti hefur farið af stað og í síðustu viku flutti UNICEF yfir 5000 sápustykki til Sómalíu, 50.000 saltupplausnir, 200 pökkum til að koma í veg fyrir ofþornun og nóg af vatnshreinsitöflum til að hreinsa vatn fyrir 47 þúsund heimili daglega í mánuð (m.v. tíu lítra á dag).

Til þessa hafa 444 manns lagst á spítala vegna niðurgangs, af þeim voru 235 börn undir fimm ára aldri. 42 hafa látist. UNICEF og WHO samhæfa aðgerðir og hjálparstarf á svæðinu.

Um Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, WHO
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er sérstök stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem sér um heilbrigði og heilsu. Hún var stofnuð 7. apríl 1948. Markmið stofnunarinnar er að tryggja öllum íbúum jarðar eins góða heilsu og mögulegt er. Góð heilsa er ekki bara það að vera án sjúkdóms, heldur er hún skilgreind sem líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan.