Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

UNICEF auglýsir eftir starfskrafti á skrifstofu

UNICEF á Íslandi óskar eftir að ráða starfskraft í hlutastarf (50%) á skrifstofu. Um er að ræða almennt skrifstofustarf, s.s. textavinna, gagnaskráning, fundahald, umsjón með daglegum rekstri, móttöku og fleira. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða tölvukunnáttu og góða þekkingu á íslenskri og enskri tungu. Þjónustulund, vandvirkni, skipulags- og samskiptahæfni er nauðsynleg. Áhugasamir sendi umsókn á unicef@unicef.is fyrir 1. apríl.