English version

UNICEF fær styrk úr Menningarsjóði Landsbankans

UNICEF hefur hlotið styrk úr Menningarsjóði Landsbankans að upphæð 1.000.000 króna en styrkirnir voru afhentir með viðhöfn í Iðnó í gær. Stjórn Menningarsjóðs ákvað að tileinka úthlutun ársins þeim 75 málefnum og félögum sem eru í þjónustunni Leggðu góðu málefni lið í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans og er UNICEF eitt þeirra félaga. UNICEF þakkar Landsbankanum og þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa lagt okkur lið kærlega fyrir stuðninginn.