yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Alvarlegir þurrkar í Svasílandi ógna nú íbúum þessa litla lands sem liggur norðan við Suður-Afríku. UNICEF gerir ráð fyrir að þurfa nærri 2,5 milljónir bandaríkjadala til að geta sinnt þörfum barna á sviði vatns, hreinlætis, heilsugæslu, barnaverndar og næringar. Eins og kunnugt er fór hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands í tengslum við dag rauða nefsins fyrir UNICEF. Hér má sjá ljósmyndir hljómsveitarmeðlima.
Af um rúmlega milljón íbúm Svasílands er áætlað að 410 þúsund þurfi á einhvers konar neyðaraðstoð að halda. Þurrkarnir eru í öllum fjórum héruðum landsins og voru þeir svo miklir að í byrjun júní lýsti ríkisstjórn landsins yfir neyðarástandi. Því neyðarkalli hefur UNICEF nú svarað og mun auka enn frekar aðstoð sína í landinu á næstu mánuðum og beita sér á ýmsum sviðum neyðaraðstoðar.
Vegna þurrkanna brást uppskeran og talið er að t.d. uppskera maís sé 61% minni í ár en árið 2006. Bændur, sem þegar eru í mjög viðkvæmri stöðu, mega ekki við uppskerubresti og þurfa nú aðstoð við að koma landbúnaðinum aftur í gang fyrir næsta misseri. Á meðan hefur verð á vörum til landbúnaðarræktunar hækkað sem gerir fátækustu fjölskyldunum enn erfiðara fyrir.
Strákarnir í Sigur Rós glöddu munaðarlausa bræðurna Bixiza og Senzo með heimsókn sinni og spiluðu m.a. fótbolta með þeim og vinum þeirra. Hér eru þeir fyrir utan heimili bræðranna.
Þurrkarnir koma líklega til með að hafa áhrif á ört stækkandi hóp HIV-smitaðra í Svasílandi þar sem nauðsynlegt er að borða með inntöku alnæmislyfja. Smitaðir munu frekar hætta að taka inn lyf ef matur er af skornum skammti. Einnig verður að gæta þess að munaðarlausum börnum sé veitt nægileg aðstoð.
Alvarlegar afleiðingar fátæktar
Fátækt og matarskortur getur haft alvarlegar félagslegar afleiðingar. Þar sem ástandið er verst hefur orðið aukning á hættulegri kynlífshegðun sem leitt getur til aukinna kynsjúkdóma og HIV/alnæmis. Kynbundið ofbeldi og ofbeldi gagnvart börnum eykst, fleiri börn hætta í skóla, tilfelli húðsjúkdóma eykst, sem og niðurgangs.
Áherslur UNICEF
UNICEF mun leggja áherslu á næringu, aðstoð við landbúnaðarframleiðslu, heilsugæslu, vatn og hreinlæti, og vernd. Einnig verður lögð áhersla á HIV/alnæmi og kynbundin vandamál sem verður samþætt inn í alla þætti neyðaraðstoðarinnar í þessu tilviki.
Neyðaráætlunin er til næstu sex mánaða, eða frá júlí til desember, en gert er ráð fyrir að áhrifin verði til langframa og að það net aðstoðar sem byggt verði upp þjóni því hlutverki að gera samfélagið hæfara til að takast á við langvarandi slæmt ástand. Lögð er áhersla á að ná til þeirra sem minnst mega sín og hjálpa þeim að byggja upp lífsafkomu sína að nýju.
Um Svasíland
Efnahagur: Í þessu litla landi stunda 80% landsmanna landbúnaðarstörf. Sykur og yrkjun skóga er mikil tekjulind fyrir landið. Mikilvægi námugröfts hefur minnkað síðustu árin og nú eru aðeins námur fyrir kol og steina í gangi.
Svasíland er mjög háð Suður-Afríku þar sem 9/10 hlutar af innflutningsvörum koma þaðan og yfir helmingur útflutningsvara fara þangað.
Ofbeit, þurrkar, ofnýting á jarðvegi og einstaka flóð munu skapa vandamál fyrir efnahag Svasílands í framtíðinni. Meira en 1/3 þjóðarinnar fékk matvælaaðstoð 2004-5 vegna þurrka og sú staðreynd að 2/5 hluti fullorðinna er HIV smitaður hefur gífurleg áhrif þegar litið er til efnahagsmála. 69% þjóðarinnar lifa undir fátækramörkum og atvinnuleysi er 40%.
Stjórnmál: Þann 6. september 1968 fékk Svasíland sjálfstæði frá Bretum. Landið er með eitt elsta konungsdæmið í heiminum og hefur konungurinn Mswati III ráðið ríkjum síðan í apríl 1986. Faðir Mswati, Sobhuza, drottnaði í nær 61 ár og árið 1973 bannaði hann alla stjórnmálaflokka. Mswati segir landið ekki tilbúið fyrir fjölflokkalýðræði og lagði blátt bann við þeim sem eru andsnúnir hans hugmyndum. Mswati hefur verið gagnrýndur fyrir þetta. Tjáningarfrelsi fjölmiðla er einnig stórlega heft.
Mswati hefur ætlast til þess að þjóðin myndi greiða fyrir hallir sínar, glæsibifreiðar og einkaþotu. Því var harðlega mótmælt á götum úti og hann neyddist til að hverfa frá þotukaupunum. Ný stjórnarskrá, sem samþykkt var 2005 og tók gildi 2006, tryggði frekari völd konungsins. Mswati er stundum kallaður „Ljónið“ og á margar eiginkonur. Landið er með ríkisstjórn og heitir forsætisráðherra landsins Absolom Themba Dlamini (síðan 2003). Utanríkisráðherra er Mabili David Dlamini.
Sjálfstjórn Svasí þjóðflokksins í suðurhluta Afríku var tryggt af Bretum seinni hluta nítjándu aldar. Sjálfstæði frá Bretum var svo veitt 1968. Stúdenta- og verkalýðsuppreisnir settu svip sinn á tíunda áratuginn og þrýstu á að konungsdæmið gerði stjórnarfarslegar breytingar og kæmi á lýðræði. Þar sem lýðræðislegar breytingar hafa átt sér stað í nálægum löndum segja sumir að Svasíland sé eyja einræðis í hafi lýðræðis.
Alnæmisvandamálið í landinu
Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar búa undir fátækramörkum (hefur minna en dollar á dag sér til framfærslu) og flestir þeirra búa á landsbyggðinni. Nærri 40% eru HIV smituð, sem er hæsta hlutfall í heimi. Nýlega tók Svasíland við af Botswana sem það land sem hefur hæsta hlutfall HIV smita í heimi. HIV-verkefni UNICEF í Svasílandi snúast því aðallega að því að veita alnæmislyf, stýra öflugu forvarnarstarfi og fræðslu um HIV/alnæmi og berjast á móti smiti.
Fjöldi munaðarlausra barna hefur aukist upp úr öllu valdi síðan 2000 og hafa nú um 100 þúsund börn misst foreldra sína, aðallega af völdum alnæmis. Ástandið mun líklega koma til með að versna þar sem HIV smit meðal fólks á aldrinum 20-30 ára nálgast 50%.
Smit frá móður til barns (mother-to-child-transmission, PMTCT) hefur aukið dánartíðni ungabarna um næstum 50% síðan árið 1995. Árið 1992 voru 3,9% þungaðra kvenna HIV jákvæðar og árið 2004 hafði hlutfallið hækkað upp í 42,6%. Um 4000 nýfædd ungabörn smitast árlega. Mikilvægt er að veita þunguðum konum alnæmispróf, fræða þær um smitleiðir og veita þeim hömlunarlyf sem koma í veg fyrir að ófætt barn þeirra smitist. Þetta eru auðveldar og ódýrar leiðir.
Alnæmisplágan hefur skapað vítahring þar sem fjölskyldan er gjörsamlega eyðilögð. Munaðarleysingjar eru fórnarlömb fátæktar og hungurs, detta úr skóla og geta ekki varið sig gagnvart ofbeldi, nauðgunum og misnotkun. 40% barna þjást af krónískri vannæringu.
Mikill skortur er á þjálfuðu heilbrigðisstarfsfólki. UNICEF og samstarfsaðilar hafa komið upp verkefnum til að koma í veg fyrir smit frá móður til barns, í því felst m.a. að þjálfa mörg hundruð hjúkrunarfræðinga.
Áætlað var að aðgangur að lyfjum myndi tvöfaldast frá september til desember 2004 og svo tvöfaldast aftur fyrir árslok 2005 og þar með munu 13 þúsund manns fá aðgang að lyfjum.
UNICEF vinnur með trúarsöfnuðum í að skapa vitundarvakningu meðal almennings um HIV/alnæmi. Eitt slíkt árangursríkt verkefni er samkeppni meðal barnakóra þar sem þúsundir barna tóku þátt í forvarnarstarfi um HIV/alnæmi.