Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Tilraunaverkefni í skólum

Þrír skólar tóku þátt í tilraunaverkefni UNICEF nú í vor. Verkefnið ber yfirskriftina UNICEF-hreyfingin. UNICEF hreyfingunni er ætlað að koma til móts við þann áhuga á starfsemi UNICEF sem við hjá landsnefndinni höfum fundið hjá kennurum og skólabörnum. UNICEF hreyfingin er skemmtilegur viðburður þar sem börn fræðast um jafnaldra sína í öðrum heimshlutum og safna áheitum fyrir þurfandi börn með því að stunda holla hreyfingu (ganga, hlaupa, hoppa, hjóla, fara á skíðum, o.s.frv.). UNICEF hreyfingin er hugsuð sem auðveldur farvegur fyrir skóla til að nota krafta sína í þágu verðugs málstaðar.

Álftamýraskóli, Kópavogsskóli og Laugarnesskóli tóku þátt í tilraunaverkefninu í vor og var árangurinn í alla staði mjög góður. Mikil stemmning ríkti í skólunum þar sem bæði börn og kennarar skemmtu sér við að safna fé fyrir þurfandi börn og fræðast um aðstæður þeirra.

Það er markmið UNICEF Ísland að UNICEF-hreyfingin muni verða valdefling fyrir íslensk skólabörn og gott tækifæri fyrir þau til að sýna vilja sinn í verki í réttindamálum barna. Ennfremur sjáum við fyrir okkur að verkefnið muni stuðla að aukinni samkennd íslenskra skólabarna með jafnöldrum sínum um allan heim. Þessi markmið haldast í hendur við aukna áherslu nýrrar aðalnámskrár á alþjóðahyggju og mannréttindi í lífsleiknikennslu.
Verkefnið verður kynnt öllum skólum seinna í sumar. Fyrirspurnir um verkefnið er hægt að senda á hreyfingin@unicef.is.