þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
Vinkonurnar Sóley Vera, 12 ára, og María, sem er 11 að verða 12 ára, héldu tombólu og seldu varning í Firðinum og fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði á dögunum. Þær söfnuðu alls 8262 krónum sem þær gáfu til UNICEF. Þær seldu eigið dót og söfnuðu því hjá öðrum til að selja eða bjóða upp á tombólunni. Stúlkurnar lögðu einnig til fé úr eigin sparibaukum áður en þær afhentu UNICEF söfnunarféð í vel skreyttri og fallegri tösku.
Þær Sóley Vera og María eru nemendur í Öldutúnsskóla. UNICEF kann þeim bestu þakkir fyrir framlagið.