English version

Tónleikar ungmennaráða UNICEF og ÍTR gengu vel

Tónleikar ungmennaráða UNICEF Ísland og Reykjavíkur í mið-og vesturbæ gengu vonum framar. Hljómsveitirnar Jeff who?, Reykjavík, Soundspell, Skakkamanage, Retro Stefson og Grrrrr tróðu upp og var ekki annað að sjá en tónleikagestir skemmtu sér vel. Allar hljómsveitirnar gáfu vinnu sína og þakka ungmennaráðin þeim vel fyrir. Söngvari Reykjavík sagði tónleikana ekki bara til að afla fjár, heldur einnig til að auka vitundarvakningu meðal ungs fólks um þróunarmál og réttindi barna. Enda báru tónleikarnir yfirskriftina "Grípum til aðgerða".

Ungmennaráðin stóðu fyrir skemmtilegri fjáröflun á tónleikunum. Hægt var að "kaupa" ýmis konar varning í tómu sjoppunni, þ.e.a.s. fólk gat gefið frjáls framlög sem samsvaraði einni bólusetningu, skólagögnum eða öðru og í staðinn fékk fólk barmnælu sem á stóð "Ég gríp til aðgerða". Sett voru upp verðsamanburður úr raunveruleika unga fólksins, t.d. hvað hægt er að kaupa margar bólusetningar fyrir pizzu eða gos. Einnig voru hinir vinsælu UNICEF-Kronkron-loftbelgja-bolir til sölu. Bolirnir verða seldir áfram í Kronkron, Spútnik Kringlunni og Gyllta kettinum.