UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
Þú ert hér:
Hátt í 3.700 börn tóku þátt í Latabæjarhlaupi Glitnis sem haldið var á svæðinu fyrir framan Háskóla Íslands eftir hádegi í dag. Þátttökugjöld runnu óskipt til Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna (UNICEF) og söfnuðust hátt í 3 milljónir króna. Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis, afhenti Þórunni Sigurðardóttur, stjórnarformanni UNICEF, söfnunarféð að viðstöddu miklu fjölmenni á háskólasvæðinu.
Birna Einardóttir hjá Glitni er mjög ánægð með daginn. ,,Þetta hefur verið frábær dagur. Við byrjuðum á Reykjavíkurmaraþoninu í morgun og svo tók Latabæjarhlaupið við. Ég dáist af því hvað krakkar og foreldrar létu rigninguna lítið á sig fá og við hjá Glitni er mjög ánægð með þennan frábæra dag.”
Þórunn Sigurðardóttir tekur í sama streng. ,,Það var tilkomumikil sjón að sjá alla þessa smáu en knáu hlaupara saman komna fyrir framan Háskóla Íslands. Með þátttöku sinni í hlaupinu lagði hver og einn í hópi hlaupagarpanna sitt af mörkum til bágstaddra barna í fjarlægum löndum. Við kunnum börnunum og foreldrum þeirra kærar þakkir. Það er virðingarvert framlag hjá Glitni að gefa íslenskum börnum þetta tækifæri til að styrkja verðugt málefni með svo uppbyggjandi hætti.”
Það átta sig ef til vill ekki margir á hvað söfnunarfé barnanna í Latabæjarhlaupinu getur breytt miklu fyrir marga. Fyrir 3 milljónir er til dæmis mögulegt að bólusetja rúmlega 120 þúsund börn gegn mænusótt og koma þannig í veg fyrir dauða eða örkuml. Fyrir þessa upphæð væri líka unt að tryggja 1.500 krökkum í Vestur-Afríku menntun.