árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Strax í kjölfar þess að hvirfilbylurinn Nargis reið yfir suðaustuhluta Mjanmar sl. laugardag, hóf Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) að meta þörfina fyrir neyðaraðstoð. Ljóst er að tjónið af völdum Nargis er gífurlegt; þúsundir manna hafi látið lífið og þúsundir eru slasaðar. Er unnið að því hörðum höndum að koma lífsnauðsynjum til svæða sem verst hafa orðið úti.
UNICEF mun vinna að því, ásamt samstarfsaðilum og yfirvöldum í Mjanmar, að tryggja íbúum landsins neysluhæft vatn, að setja upp örugg frárennsliskerfi og bæta hreinlætisaðstöðu. Einnig munu samtökin leitast við að tryggja börnum vernd og aðstoða þau við að snúa aftur í skóla eins fljótt og auðið er. Meðal birgða sem brýnast er að koma til bágstaddra á þessu stigi málsins eru vatnshreinsitöflur, áhöld til eldunar, flugnanet, nauðsynleg sjúkragögn og matur.
Fyrstu frásagnir sem berast af vettvangi gefa til kynna að þúsundir hafi týnt lífi og að þúsunda í viðbót sé saknað. Í dag hafa stjórnvöld í Mjanmar svo tilkynnt að tala látinna sé a.m.k. 15 þúsund. Rafmagnlínur á hrjáðum svæðum hafa rofnað í storminum, sem gerir flesta vegi illfæra fyrir björgunarfarartæki
Yfir 60 prósent íbúa landsins eru konur og börn. Þessir hópar eru líklegir til að verða mest fyrir barðinu á afleiðingum veðurofsans. Reynslan sýnir að börn eru afar berskjölduð fyrir öllum þeim hættum sem fylgja í kjölfar náttúruhamfara.
UNICEF hefur unnið í Mjanmar síðan 1950. Samtökin reka níu svæðisskrifstofur í landinu ásamt aðalstöðvum í Yangon.