Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

OR og UNICEF undirrita samstarfssamning

©UNICEF/06-0542UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur hafa bundist samtökum um að safna fé til að afla drykkjarvatns fyrir börn um víða veröld. Skortur á heilnæmu drykkjarvatni ógnar lífi og heilsu barna víða um heim og er talið að um 6.000 börn láti lífið á hverjum degi vegna sjúkdóma sem rekja má til neyslu á óheilnæmu vatni. Tímafrekur vatnsburður um tuga kílómetra leið er oft á tíðum verkefni barna og stendur þannig menntun þeirra fyrir þrifum. UNICEF vinnur að því í yfir 90 löndum að auka aðgang barna að heilnæmu drykkjarvatni og hefur einsett sér að draga úr þeim fjölda fólks sem ekki hefur aðgang að hreinu vatni um helming fyrir árið 2015.

VATNSVIKAN mun verða árlegur viðburður í samstarfi þessara aðila næstu ár. Í VATNSVIKUNNI 4.-13. apríl mun gestum fjölda veitingahúsa standa til boða að greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni, sem veitingahúsagestir á hinu vatnsauðuga Íslandi fá alla jafna endurgjaldslaust. Jafnframt gefst almenningi kostur á að styðja við framtakið með því að leggja fram fjárframlög gegnum vefi UNICEF á Íslandi og Orkuveitu Reykjavíkur.

Jafnframt munu UNICEF og Orkuveitan kanna möguleika á frekara samstarfi samhliða auknum umsvifum Orkuveitunnar erlendis. Orkuveita Reykjavíkur hefur einsett sér að nýta þekkingu fyrirtækisins í þeim samfélögum þar sem það er að hasla sér völl erlendis. Þessa mun fyrst sjá stað í eyðimerkurríkinu Djíbútí í Afríku þar sem framleiðsla drykkjarvatns verður hluti framleiðsluferils nýrrar gufuaflsvirkjunar Reykjavik Energy Invest í landinu. Með það verkefni að leiðarljósi hyggjast Orkuveita Reykjavíkur og UNICEF á Íslandi leita leiða til að þróa samstarf UNICEF og REI á heimsvísu.

Þau veitingahús sem þátt taka í fyrstu VATNSVIKU UNICEF eru: Brasserie Grand, Domo, Einar Ben, Fiskmarkaðurinn,Gullfoss, Grillið, Hótel Holt, La Primavera, Ó restaurant, Perlan, Silfur, Sjávarkjallarinn, Við Tjörnina, Við fjöruborðið og VOX.