UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
Neyðarhjálp fyrir fórnarlömb hvirfilbylsins Nargis heldur áfram. Sameinuðu þjóðirnar telja að um tvær og hálf milljón manns þurfi á aðstoð að halda, þar af eru 40 prósent börn. Í bænum Laputta hafa um 30 prósent barna veikst af niðurgangi eða blóðkreppusótt.
Hættan á að lífshættulegir sjúkdómar taki að breiðast út eykst með hverjum degi. Fjöldi fólks sefur á berangri án nokkurrar verndar gegn náttúruöflunum og vatnsból eru flest menguð. Búðir fyrir þá sem misst hafa heimili sín eru óskipulagðar og skortir viðunandi hreinlætisaðstöðu. Þegar það bætist ofan á matarskort er heilsu barna stefnt í mikinn voða; við slíkar aðstæður geta sjúkdómar eins og mislingar valdið mörgum dauðsföllum. Því hefur UNICEF hafið bólusetningarherferð gegn mislingum á svæðinu.
„Ég hræðist mest að stór mislingafaraldur brjótist út á hamfarasvæðunum, sérstaklega í búðum fyrir heimilislausa,“ sagði yfirmaður heilbrigðismála hjá UNICEF, dr. Peter Salama.
70 prósent ekki fengið aðstoð
Á mánudaginn hitti James Holmes, aðstoðarframkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna, ráðamenn í herforingjastjórninni í Mjanmar og ræddi við þá um leiðir til að bæta neyðaraðstoðina. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, er væntanlegur til Mjanmar í dag, fimmtudag, til að kynna sér ástandið á hamfarasvæðunum og til að ræða frekar við ráðamenn.
Matvara og lyf berast nauðstöddum á hamfarasvæðunum. Því fer þó fjarri að um sé að ræða nægilegt magn til að mæta hinni miklu þörf bágstaddra á svæðinu. Sameinuðu þjóðirnar telja t.d. að allt að 70 prósent þeirra sem urðu fyrir áhrifum að hvirfilbylnum hafi ekki fengið aðstoð í formi matvæla.