Vissir þú að...

þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.

Þú ert hér:  

Yfirlýsing UNICEF vegna árásanna á Gaza

UNICEF hefur miklar áhyggjur af þeim áhrifum sem núverandi ofbeldi á Gaza mun hafa á börn. UNICEF hvetur alla hlutaðeigandi aðila að átökunum að fara eftir alþjóðlegum lögbundnum skyldum til tryggja að börn fái vernd og öll þau nauðsynlegu hjálpargögn og stuðning sem þau þurfi á að halda.

Yfir helmingur íbúa á Gaza eru börn og börn eru sérstaklega viðkvæm í þeim aðstæðum sem skapast við vopnuð átök. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu þróunaraðstoðar (OCHA) telur að börn séu meðal þeirra sem látist hafa og særst vegna nýliðinna loftárása.

Það er nauðsynlegt að neyðaraðstoð, þar á meðal matur, lyf og sjúkragögn, fái greiðan aðgang að Gaza til að hægt sé að mæta brýnum þörfum barna og kvenna á svæðinu.