á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
Þú ert hér:
Á meðan átök sem geisa í nágrannalandinu Austur-Kongó hafa fengið mikla athygli er ástandið í Miðafríkulýðveldinu á mjög viðkvæmu stigi. UNICEF hefur miklar áhyggjur af vaxandi fjölda flóttabarna og kvenna og öryggi þeirra.
UNICEF vonast til að ástandið muni ekki ógna friðarviðræðum sem áætlaðar eru í höfuðborginni, Bangui, 5.-20. desember. Ríkisstjórn og uppreisnarhópar munu taka þátt í viðræðunum til að ná fram langþráðum stöðugleika í Miðafríkulýðveldinu.
Í síðustu viku kom til tveggja árása í landinu milli mismunandi uppreisnarhópa og ríkishersins. Annað þessarra tilvika leiddi til þess að helmingur íbúa bæjar eins flúði út í skóg.
Áframhaldandi ofbeldi og átök geta veikt ríkisstjórnina og hamlað árangri í þróunaraðstoð. Auk þess leiðir það til aukins fjölda flóttafólks innan landamæra Miðafríkulýðveldisins, sem er nú þegar orðinn um 200 þúsund. Ofbeldið hefur einnig áhrif á aðgang og hjálparstarf fyrir þá sem hafa flúið heimili sín og þurfa mest á aðstoð að halda.
Nýlega samdi UNICEF um lausn barna sem höfðu verið notuð í vopnuðum átökum af hálfu uppreisnarhópa og leiddi það til þess að um 100 börnum var sleppt. UNICEF hefur verulegar áhyggjur af því að vaxandi ofbeldi gæti hamlað frelsi fleiri barna frá stríðandi fylkingum.
„UNICEF vonast eftir því að friðarviðræður í Miðafríkulýðveldinu muni leiða til friðar og uppbyggingar,“ segir Mahimbo Mdoe, yfirmaður UNICEF í landinu. „En eins og staðan er í dag er landið á ystu nöf. Frá því friðarviðræðurnar hófust hefur orðið vart við nokkuð jákvæða þróun fyrir börn og konur. Aukið ofbeldi mun aðeins gera lítið úr þessu ferli. Það er kominn tími til að alþjóðasamfélagið setji pressu á stríðandi fylkingar til að sýna aðhald.“