UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
UNICEF á Íslandi leitar eftir hressu og áræðanlegu ungu fólki til fjáröflunar- og kynningarstarfa í júlí og fyrri helming ágústmánaðar. Um er að ræða starf götukynna sem skrá heimsforeldra í Reykjavík og nágrenni, sem og úti á landi. Jákvæðni, traust og áræðanleiki er skilyrði.
Farið verður í a.m.k. tvær ferðir út á land dagana 8.-11. júlí og 21.-24. júlí. Nauðsynlegt er að umsækjendur komist í þær ferðir. Starfið er verktakavinna og greitt fyrir hverja unna klukkustund, auk þess sem starfsfólk fær dagpeninga þegar farið er út á land.
Vinsamlegast sendið umsóknir til anna hjá unicef.is undir fyrirsögninni Ferilskrá. Nánari upplýsingar í síma 552 6304 eða í fyrrgreint tölvupóstfang.