þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
Aurora velgerðarsjóðurinn hefur nýverið veitt 120 milljónum íslenskra króna til verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne. Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa og Alfesca, stofnuðu velgerðasjóðinn fyrir ári síðan og lögðu honum til einn milljarð króna í stofnframlag.
Styrkurinn fer til menntaverkefna UNICEF í Síerra Leóne og er hann til þriggja ára. Styrkféð fer í verkefni sem miða að því að að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.
Menntamálaráðherra Síerra Leóne, dr. Minkailu Bah, kom til landins að þessu tilefni. Dr. Bah hélt tölu við afhendingu styrksins miðvikudaginn 23. janúar þar sem hann þakkaði hlýhug Íslendinga í garð barna í landi sínu. Einnig hélt menntamálaráðherrann tölu á opnum málfundi UNICEF Ísland, fimmtudaginn 24. janúar. Dr. Bah hitti meðal annars Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra að máli og notaði tækifærið til að heimsækja Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Laugarnesskóla og Námsgagnastofnun.
Menntaverkefnið sem styrkt er í Síerra Leóne
Fjárstyrkur Aurora velgerðarsjóðsins mun styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015. Aurora velgerðasjóðurinn og UNICEF á Íslandi munu vinna í sameiningu að því marki að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar árið 2010. Skólahús verða reist fyrir atbeina styrktarsjóðsins á árunum 2008-2010. Í hverju húsi verða þrjár til sex skólastofur þar sem gert er ráð fyrir að kenna börnum á aldrinum 6-12 ára. Jafnframt útvegar sjóðurinn húsgögn og nauðsynlegan búnað í skólana og sér húsunum fyrir vatni, hreinlætisaðstöðu og leiktækjum utan dyra. Þá mun sjóðurinn standa straum af kostnaði við að mennta og þjálfa kennara, horfa jafnframt sérstaklega til menntunar og öryggis stúlkna og styðja hópastarf kvenna og mæðra. Í umsögn stjórnar Aurora velgerðasjóðs segir meðal annars:
„Menntun er eitt helsta vopnið gegn fátækt í heiminum og gefur einkum börnum færi á mannsæmandi lífskjörum, eykur sjálfsvirðingu þeirra og hefur víðtæk áhrif til að skapa upplýst samfélag. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur að mati stjórnar Aurora velgerðasjóðs gert heildstæða aðgerðaáætlun um uppbyggingu grunnmenntunar í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. Þar er ráðist að rótum vandans og tekið á flestum þáttum sem standa í vegi þess að börn á grunnskólaaldri, einkum stúlkur, njóti þeirra menntunar sem þau eiga rétt á.“