á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
Þú ert hér:
Bardagar í Norður Kivu, í Austur-Kongó, hafa færst í aukana síðustu 48 tímana og leitt til þess að tugir þúsunda eru nú á flótta til Goma, höfuðborgar héraðsins. Bardagarnir hafa að mestu átt sér stað í bænum Kibumba á Rutshuru-svæði, þar sem 40 þúsund manns hafa flúið í norðurátt til Kanyabayonga. Margir voru þegar á flótta. Aðrir hafa flúið frá Rutshuru í nærliggjandi þorp við landamæri Úganda.
Um 17 þúsund flóttafólks hafði aðsetur í bráðabirgðabúðum í Kibumba. Allt þetta fólk hefur flosnað upp að nýju. „Þúsundir manna eru nú að leggjast á flótta í annað sinn, eða jafnvel þriðja og fjórða sinn í Norður Kivu,“ sagði Julien Harneis, yfirmaður neyðarhjálpar UNICEF í Austur-Kongó. „Áhrif slíkra endurtekinna flutninga á börn og konur eru hræðileg. Í slíkum aðstæðum aukast líkur á að sjúkdómum eins og kóleru og mislingum, og fleiri börn eiga á hættu að verða vannærð. Ef bardagar og fólksflótti halda áfram, án hlés, getur það ógnað lífi barna og fjölskyldna þeirra.“
UNICEF í Austur-Kongó á birgðir af búsáhöldum, teppum og plastdúkum. Þessu verður dreift um leið og flóttafólkið hefur sest að á öruggu svæði. Áður en átökin brutust út voru milli sjö og átta þúsund flóttafólks í Kabati búðunum, rétt utan við Goma. Síðustu þrjá daga hefur tala flóttafólks farið upp í 50 þúsund. Margir hafast við í kirkjum, skólum og undir beru lofti nálægt búðunum.
UNICEF heldur áfram að veita aðstoð til flóttafólksins í Kabati búðunum með því að dreifa drykkjarhæfu vatni, byggja salernisaðstöðu í og við búðirnar til að koma til móts við fjölgun flóttafólks. UNICEF og Save the Children í Bretlandi starfa saman að því að finna börn sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og koma þeim fyrir hjá öðrum fjölskyldum í búðunum þangað til foreldrar þeirra finnast.
UNICEF vekur athygli á því að allir vopnaðir hópar og aðrir hlutaðeigandi aðilar verða að virða réttindi barna og tryggja að þau hafi aðgang að vernd, heilsugæslu og menntun.